05.05.1988
Sameinað þing: 77. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7451 í B-deild Alþingistíðinda. (5509)

511. mál, viðskiptahalli

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Það hefur verið vitað nokkuð lengi um þá spá Þjóðhagsstofnunar að það stefndi í þann viðskiptahalla sem hér hefur verið rætt um og það er helst að frétta að hæstv. forsrh. er á förum til útlanda til að hitta þar þjóðhöfðingja sem er að láta af störfum mjög fljótt og hefur einnig reynslu í viðskiptahalla.

Nú getur verið að reynsla á báðum þessum sviðum sé þörf, en mér fannst að spurningunni væri aftur á móti að verulegu leyti ósvarað, hvað væri fyrirhugað að gera og hvað ylli þeirri töf sem orðið hefur á að gripið væri til aðgerða frá því að þessi spá kom fram.