05.05.1988
Sameinað þing: 77. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7461 í B-deild Alþingistíðinda. (5523)
512. mál, innheimta söluskatts
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir að koma með þessa fsp. og jafnframt hæstv. ráðherra fyrir hans svör.
Ég trúi því að hæstv. ráðherra láti ekki hrekja sig af leið í þessu máli og ég trúi því að það sem eitt sinn var sagt hér í þingsölum um ákveðinn mann, að þar færi maður sem þyrði, gæti átt við í því sambandi að nú reynir á hvort menn þora að fylgja þessu eftir. Og það eina sem ég vil bæta við í þessum efnum: Ég vil minna á að hafi verið freisting áður að skila ekki öllum söluskattinum er sú freisting að sjálfsögðu mun meiri núna þegar söluskatturinn er jafnstór hluti af veltu verslana og raun ber vitni.