05.05.1988
Efri deild: 90. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7481 í B-deild Alþingistíðinda. (5545)
468. mál, leigubifreiðar
Samgönguráðherra (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Ég vildi aðeins leyfa mér að þakka nefndinni fyrir afgreiðslu hennar á þessu máli.
Ég vil leiðrétta þann misskilning, sem fram kemur hjá hv. 4. þm. Vesturl., að af þessu frv., flutningi þess og stuðningi við það, megi meta sjónarmið manna í sambandi við frelsi og athafnafrelsi í landinu. Það er hinn mesti misskilningur. Eins og kom fram í minni ræðu og vikið er að í nál. er verið að bera fram frv. til að taka af öll tvímæli um þær lagareglur sem hér gilda og settar voru fyrir ekkert mjög löngu. Það grundvallast á hæstaréttardómi sem kveðinn var upp fyrir meira en ári þar sem Hæstiréttur klofnaði. Þau sjónarmið löggjafans, sem talið var að lægju til grundvallar texta laganna, urðu undir og til þess að taka skýrt fram hvernig þau skuli vera er um að ræða orðalagsbreytingu.
Við skulum síðar meir skoða, hv. þm., hvort ekki væri rétt að veita fullt frelsi í þessum efnum, en meðan unnið er að málinu er verið að leiðrétta og lagfæra og þannig ber að skilja þetta frv. eins og fram kom í minni framsöguræðu og einnig í nál. hv. samgn.