05.05.1988
Efri deild: 90. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7499 í B-deild Alþingistíðinda. (5565)
Frumvarp um breytingu á áfengislögum
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég lýsi þeirri skoðun minni að mér finnst eðlilegt að það mál sem hér er eftir á dagskrá fái þinglega meðferð og tel ekki eftir mér að sitja hér fram eftir degi og kvöldi ef með þarf og vil einmitt benda á það og taka undir það sem hv. 7. þm. Reykv. sagði áðan að ýmis þmfrv. eru órædd og ég tel þess vegna nauðsynlegt að deildin fari vel með tíma sinn til þess að þau fáist rædd áður en þinglausnir verða.