05.05.1988
Efri deild: 90. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7499 í B-deild Alþingistíðinda. (5567)
Frumvarp um breytingu á áfengislögum
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Það má auðvitað lengi um það deila hvort á að taka fyrstuumræðumál, hvort á að láta neðrideildarmál mæta afgangi eða hvernig það allt saman er gert. En ég hygg að við munum geta náð einhverju góðu samkomulagi um það. Ég vil bara undirstrika það að samkomulag og samstarf við stjórnarandstöðuna um framgang mála í þessari hv. deild hefur verið mjög gott og ekkert undan því að kvarta. Ég vona að við getum haldið áfram á þeirri braut uns kemur að þinglausnum. Og ég hef satt að segja engar áhyggjur af því að okkur takist ekki að gera það.