06.05.1988
Neðri deild: 94. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7676 í B-deild Alþingistíðinda. (5705)

432. mál, Ríkisendurskoðun

Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 1066, um frv. til laga um breyt. á lögum nr. 12/1986, um Ríkisendurskoðun.

Nefndin hefur athugað frv. Kvaddi hún á sinn fund Pál Sigurðsson ráðuneytisstjóra, Ólaf Ólafsson landlækni, Hauk Þórðarson, formann Læknafélags Íslands, Halldór V. Sigurðsson og Sigurð Hermundarson frá Ríkisendurskoðun.

Nefndin telur rétt að Ríkisendurskoðun fái þær almennu heimildir sem kveðið er á um í frv. til þess að hún geti rækt hlutverk sitt með viðunandi hætti. Nefndin leggur áherslu á nauðsyn þess að réttur sjúklinga til fulls trúnaðar um einkamál verði í heiðri hafður og ákvæði læknalaga um þagmælsku virt. Nefndin telur að heilbrrn. beri að hafa forustu um að móta verklagsreglur sem kveði m.a. á um að sérstakur trúnaðarlæknir annist athuganir Ríkisendurskoðunar á sjúkragögnum sem liggja til grundvallar greiðslum til lækna. Þannig verði nauðsynlegs trúnaðar gætt.

Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt eins og það liggur fyrir á þskj. 782.

Undir nál. rituðu Páll Pétursson, Geir H. Haarde, Einar Kr. Guðfinnsson, Kjartan Jóhannsson, Guðmundur G. Þórarinsson og Steingrímur J. Sigfússon.