06.05.1988
Neðri deild: 94. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7683 í B-deild Alþingistíðinda. (5715)

432. mál, Ríkisendurskoðun

Ingi Björn Albertsson:

Herra forseti. Ég á sæti sem áheyrnarfulltrúi í hv. fjh.- og viðskn. sem hefur lagt til að frv. verði samþykkt. Ég verð að segja það að umræðan í nefndinni var svo sem eins og spegilmynd af þeirri umræðu sem hér hefur farið fram, eingöngu um læknaþáttinn. Ég get að vísu fallist á að þar þurfi að fara varlega, en þetta mál er bara mikið stærra en það að eingöngu eigi að horfa til læknastéttarinnar.

Hér er verið að veita Ríkisendurskoðun mjög víðtækt vald. Þeir geta farið í bókhald hjá hverjum þeim sem fær fé eða ábyrgðir úr ríkissjóði. Ég tel að þetta vald sé allt of víðtækt og beri að fara varlega í að afhenda Ríkisendurskoðun slíka heimild. Það eru fleiri aðilar sem fá fé eða ábyrgðir frá ríkinu en læknar. Það þarf varla að nefna nein dæmi, en það má taka til t.d. verktaka. Það á ekki að opna þeirra bókhald fyrir slíku.

Ég vil þar af leiðandi taka undir það nál. sem kom úr Ed. frá minni hl. en þar segir, með leyfi forseta: „Frv. gerir ráð fyrir að Ríkisendurskoðun verði veitt mjög víðtæk lagaleg heimild til þess að rannsaka bókhald og grunngögn reikninga sem ríkinu er ætlað að greiða samkvæmt lögum, verksamninga o.fl. Er gert ráð fyrir að Ríkisendurskoðun geti krafist þess að fá aðgang að bókhaldi einkaaðila og fyrirtækja þeirra.

Hér er allt of langt gengið og um óeðlileg afskipti ríkisvaldsins af fjárreiðum einstaklinga að ræða.“ Herra forseti. Ég vildi að þetta kæmi fram hér í umræðunni að menn væru með það alveg skýrt og klárt að það er um fleira að ræða en læknastéttina á Íslandi þegar þessi lög eru samþykkt.