06.05.1988
Neðri deild: 94. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7685 í B-deild Alþingistíðinda. (5717)

432. mál, Ríkisendurskoðun

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég hef ekki fylgst náið með framvindu þessa máls, en það hefur verið til umræðu í mínum þingflokki á vissum stigum. Ég hef á þeim vettvangi lýst þeirri skoðun minni og vil að það komi fram hér að menn þurfi að gæta sín afar vel í sambandi við lagasetningu af því tagi sem hér er til umræðu og ég vil ekki liggja á því að mér finnst að þau lagaákvæði, sem hér er gerð tillaga um í frv. til laga um breyt. á lögum um Ríkisendurskoðun, séu ekki mótuð með þeim hætti sem æskilegt væri. Ég skil vel það markmið sem menn hyggjast ná með frv., þ.e. tryggja að hægt sé að viðhafa eðlilega bókhaldslega endurskoðun á reikningum sem framvísað er til Tryggingastofnunar og ríkinu er ætlað að greiða. Það er mjög eðlilegt markmið. Ég tel hins vegar að sú afdráttarlausa heimild sem í rauninni er verið að lögfesta í 1. gr. frv. gangi það langt að menn þurfi að staldra við áður en hún er lögfest. Það er nefnilega kannski ekki bara þetta eina afmarkaða mál sem hér er á ferðinni. Menn standa hér frammi fyrir þessu: Hvað eiga menn að fara langt út á þá braut að hleypa aðilum í einkamál manna á ýmsum sviðum til endurskoðunar og e.t.v. til skráningar? Ég held að þörf gæti verið á því fyrir Alþingi í rauninni að taka þau mál öll til sérstakrar athugunar, hvort sem það eru endurskoðendur vegna fjárreiða, bókhaldslegrar endurskoðunar, hvort það eru lögregluyfirvöld til athugunar á málum og annað af því tagi. Alveg sérstaklega er nauðsynlegt nú á tölvuöld að einstaklingurinn sé varinn gegn upplýsingaöflun af því tagi sem víða er í gangi sem hægt er að beita gegn mönnum með óeðlilegum hætti. Ég er ekki að segja að þetta eina afmarkaða mál sé út af fyrir sig inni í því samhengi nema sem spurningin um tengsl við annað sem er á ferðinni í okkar samfélagi í þessum málum, og ekki bara hér á Íslandi heldur víða erlendis, vegna upplýsingasöfnunar og innfærslu í upplýsingakerfi sem getur veitt mönnum aðild til óeðlilegrar íhlutunar um málefni sem varða menn eingöngu persónulega og hægt er að misbeita. Ég nefni það að t.d. í Vestur-Þýskalandi, ég hef fylgst svolítið með því, hafa verið miklar umræður uppi einmitt um upplýsingasöfnun, tengist þar m.a. svokölluðu innra öryggi, tölvuskráningu á heimildum um einstaklinga, og það væri fyllsta ástæða til þess að gaumgæfa þau mál hér og nú þó að sérstök nefnd, svokölluð tölvunefnd, held ég, fjalli um síkar skráningar, en Alþingi þarf að vera á varðbergi til verndar þegnunum í þeim efnum.

Það sem stendur hér í þessum texta, herra forseti, er á þessa leið:

„Þá er Ríkisendurskoðun heimill aðgangur að og skoðun á grundvallargögnum eða skýrslum sem færðar eru samhliða reikningsgerð á hendur ríkinu eða ríkisstofnunum fyrir vinnu eða þjónustu, sem greiðsluskyld er að öllu leyti eða verulegum hluta úr ríkissjóði á grundvelli laga, verksamninga eða gjaldskrársamninga við einstaklinga, félög eða stofnanir, til að sannreyna efni innsendra reikninga og greiðsluskyldu ríkissjóðs.“ Þetta er löng málsgrein og hún felur í sér mjög afdráttarlausa heimild í þessum efnum. „Aðgangur að og skoðun á grundvallargögnum eða skýrslum.“ Þetta er lagatexti. Síðan kemur þetta nál. sem mér finnst nú ekki móta stefnu um hvernig á þessu verði haldið með þeim hætti að viðunandi sé. Mér finnst það ekki. Það segir hér:

„Nefndin telur að heilbrmrn. beri að hafa forustu um að móta verklagsreglur sem kveði m.a. á um að sérstakur trúnaðarlæknir annist athuganir Ríkisendurskoðunar á sjúkragögnum sem liggja til grundvallar greiðslum til lækna.“

Þetta eru svona tilmæli til framkvæmdarvaldsins í þessum efnum og að trúnaðarlæknir annist athuganir Ríkisendurskoðunar. Það er áfram talað um athuganir Ríkisendurskoðunar. Maðurinn er á vegum Ríkisendurskoðunar að þessu eins og skilja má þennan texta nál. Mér finnst þetta ekki vera undirbúið með þeim hætti. Ég hefði kosið að menn leituðu annarra leiða varðandi bókhaldskvaðir lækna til þess að unnt sé að uppfylla eðlilega bókhaldsendurskoðun án þess að verið sé að fara í sjúkragögnin sjálf. Eru ekki möguleikar á því að sjúklingar kvitti fyrir með beinum hætti það sem reikningsfært er — ég spyr — þannig að slík staðfesting liggi fyrir? Og maður spyr sig líka: Hvað verður mikið um endurskoðun af þessu tagi? Hvað tortryggja menn læknastéttina mikið í þessum efnum? Það er vafalaust víða pottur brotinn, ekki bara þar heldur víðar þar sem ástæða er til bókhaldslegrar endurskoðunar og það er auðvitað nauðsynlegt að finna skilvirkar leiðir til að hún geti farið fram. En ég staldra við í þessu efni. Ég á mjög erfitt með að greiða frv. atkvæði eins og það liggur fyrir.