06.05.1988
Neðri deild: 94. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7689 í B-deild Alþingistíðinda. (5720)
432. mál, Ríkisendurskoðun
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég hygg nú að það væri fróðlegt fyrir hv. síðasta ræðumann að kynna sér þá umræðu sem lá að baki og var lögð til grundvallar þegar ákvörðun var tekin um að flytja Ríkisendurskoðun frá Fjárlaga- og hagsýslustofnun til Alþingis. Það mundi kannski skýra ofurlítið fyrir honum stöðu stofnunarinnar og hvers vegna hún starfar nú í raun og veru sem hluti af fjárveitingavaldinu og við hlið Alþingis við fjárlagagerð.
Ég vil bara segja að ég held að menn verði að gæta hófs við umræðu af þessu tagi á báða bóga og einnig að gæta hófs gagnvart þessari stofnun, Ríkisendurskoðun, sem er falið mjög mikilvægt hlutverk í þjóðfélaginu. Ég vil leyfa mér að trúa að hún hafi ráðið til sinna starfa vandað fólk. Mér er líka kunnugt um það að á þeim bæ eru gerðar strangar ráðningarkröfur og starfsfólk látið undirrita sérstaka trúnaðareiða sem ganga lengra heldur en skyldur opinberra starfsmanna almennt gera að öðru leyti.
Ég vil líka biðja menn að hafa í huga og ræða hvort ástæða sé til að ætla að það veki meiri tortryggni og ógni í raun og veru meir friðhelgi einstaklinganna í landinu að Ríkisendurskoðunin fái þessar heimildir en sú meðferð sjúkragagna sem á sér stað út um allt þjóðfélagið í dag. Ég vil biðja menn að hugleiða stöðu einstaklinga á Þórshöfn sem hafa búið við það að hafa allt upp í 10 lækna á sama árinu og skiptin stundum orðið næstum vikulega. Halda menn að hver einasti íbúi byggðarlagsins hafi samið persónulega um trúnað við hvern og einn lækni í hvert skipti? Ætli æðimargar sjúkraskrár hafi ekki verið lesnar af einum manninum á fætur öðrum og þar með í trausti þess að hin almenna þagnarskylda lækna væri hluti af starfinu og þyrfti ekki að ganga persónulega frá þeim málum í hvert og eitt skipti við hvern og einn sjúkling? Það sem hér er nauðsynlegt að fá á hreint er fyrst og fremst það hvort ekki beri að lita svo á að þagnarskylda lækna, sbr. læknalög, sé almennur hluti af starfsskyldum þeirra og eigi við um hvern og einn lækni og í hvert og eitt skipti sem hann umgengst trúnaðarupplýsingar af þessu tagi. Það er minn skilningur og þess vegna tel ég að tilkoma sérstaks trúnaðarlæknis sem annist þessa milligöngu sjái a.m.k. jafn vel fyrir því að þessi trúnaður og þagmælska sé virt eins og gerist og gengur mjög víða úti í heilsugæslukerfinu. Ég minni líka á nýju heilsugæslustöðvarnar og þá staðreynd að þar eru þúsundir sjúklinga sem ekki hafa valið sér tiltekinn og sérstakan heimilislækni heldur leita til stöðvarinnar og sækja þjónustu hjá hverjum þeim lækni sem þá kann að vera til staðar og tilbúinn til þess að taka á móti sjúklingum. Hver er þá orðinn eðlismunurinn á því að þessar upplýsingar fari í gegnum hendurnar á sérstökum trúnaðarlækni sem annist þessa milligöngu fyrir hönd Ríkisendurskoðunar? (Forseti: Ég vil minna hv. ræðumann á að hann hefur aðeins rétt til að gera örstutta athugasemd en ef hann vill ljúka máli sínu þá er honum það heimilt með einhverjum setningum.)
Já, ég þakka forseta. Ég ætlaði að ljúka máli mínu með því að benda mönnum á að lesa 1. gr. frv. sem hér er til umræðu, þ.e. niðurlagið, þar sem segir að verði ágreiningur um skoðunarheimild Ríkisendurskoðunar skv. þessari grein geti ríkisendurskoðandi leitað úrskurðar sakadóms. Staðan er sú í dag að Ríkisendurskoðun getur þurft að gera það í hverju einasta tilfelli ef hún ætlar að fara ofan í saumana á svona málum. Það er ekki heppilegt fyrirkomulag að gera þannig hvert einasta tilfelli, sem Ríkisendurskoðun reynir að sinna skyldu sinni í, sjálfkrafa að dómsmáli. Við það býr stofnunin í dag og það er að mínu mati mjög eðlilegt að menn vilji reyna að komast hjá slíku og er öllum fyrir bestu.