06.05.1988
Neðri deild: 94. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7693 í B-deild Alþingistíðinda. (5724)

432. mál, Ríkisendurskoðun

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Öðruvísi mér áður brá, verð ég að segja. Það er bæði sorglegt og gaman að því á vissan hátt að horfa upp á fyrrv. flokksfélaga mína, sjálfstæðismenn, verja ríkisforsjá og Alþb. mótmæla ríkisforsjá. Þetta er alveg dýrlegt.

En varðandi það sem hv. 13. þm. Reykv. sagði og spurði um og beindi nú spurningunni til varamanns Sjálfstfl., þá er það rétt hjá henni, sem fólst í spurningunni, að ef þetta frv. verður að lögum er framlag úr öllum ríkistengdum sjóðum á ríkisábyrgð og það er bankaábyrgð ríkisbankanna. Ríkisendurskoðun hefur allan aðgang að fyrirtækjum til þess að rannsaka hvort viðkomandi láni eða framlagi eða endurgreiðslum úr ríkissjóði hefur verið ráðstafað á þann hátt sem til var ætlast. Það fer ekkert milli mála.