06.05.1988
Neðri deild: 94. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7695 í B-deild Alþingistíðinda. (5731)
130. mál, meðferð einkamála í héraði
Frsm. allshn. (Ólafur G. Einarsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til l. um breytingu á lögum um meðferð einkamála í héraði nr. 85 23. júní 1936, með síðari breytingum. Álit nefndarinnar er á þskj. 1053 og þar kemur fram að nefndin mælir einróma með samþykkt frv. Fjarverandi afgreiðslu málsins var Óli Þ. Guðbjartsson. Kristín Einarsdóttir sat fund nefndarinnar og er samþykk afgreiðslu málsins.
Ég vil geta þess að þetta mál er komið frá hv. Ed. og hlaut þar ítarlega umfjöllun. Þar voru gerðar á því nokkrar breytingar og eins og ég sagði mælir allshn. einróma með að frv. verði samþykkt.