07.05.1988
Neðri deild: 96. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7706 í B-deild Alþingistíðinda. (5790)

Frumvarp um Ríkisendurskoðun

Forseti (Jón Kristjánsson):

Varðandi þetta dagskrármál hafa hv. þingdeildarmenn áreiðanlega tekið eftir því að Ríkisendurskoðun var ekki á dagskrá til 3. umr. þannig að 3. umr. er eftir um málið. Það var með vilja gert af forseta vegna þess að hér voru miklar umræður um þetta mál í gær og fyrirspurnir þannig að forseta fannst ekki ástæða til að keyra málið í gegnum 3. umr. í dag. Ég mun hlutast til um að þær upplýsingar sem menn óska eftir í þessu máli liggi fyrir við 3. umr. málsins og umræðan verði þá eftir helgi.