07.05.1988
Sameinað þing: 80. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7711 í B-deild Alþingistíðinda. (5798)
467. mál, vegáætlun 1987--1990
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Fyrir rúmu ári síðan voru hv. alþm. samankomnir og hlustuðu á svipaða ræðu og hér var flutt nú um það að verið væri að auka fjármagn til vegagerðar. Og ekki aðeins það að verið væri að auka framkvæmdir á árinu 1987 heldur horfðum við til miklu bjartari framtíðar og árin 1988, 1989 og 1990 mundi verða staðið við markmið langtímavegáætlunar að fullu. Það yrði veitt 2,4% af þjóðarframleiðslu til vegaframkvæmda á næstu árum en vegna sérstakra aðstæðna á árinu 1987 væri ekki hægt að ná þessu marki þá. En þrátt fyrir það væri nú, á árinu 1987 var sagt þá, væri nú aukið fjármagn til þessara framkvæmda á svipaðan máta og sagt var hér áðan.
Og hver skyldi reynslan vera um framtíðarloforðið, um það hvað við skyldum fá til vegagerðar á árinu 1988? Skyldi það koma upp úr kafinu að það er ekki staðið við neitt af þessum fögru loforðum nema síður sé? Hver er útkoman fyrir árið 1987? Ætli það hafi verið aukning miðað við árin á undan og ætli það hafi nokkuð nálgast það að staðið yrði við framtíðarmarkmiðið 2,4%? Það var dreift hér skýrslu á hv. Alþingi í gær frá samgrh. um framkvæmd vegáætlunar á árinu 1987. Hver er útkoman og hvað er það sem þar kemur fram? Það kemur fram að til vegamála á landinu hefur aldrei frá því á árinu 1964 farið minna hlutfall af þjóðarframleiðslunni heldur en á árinu 1987. Þannig var staðið við góðu fyrirheitin, kosningafyrirheitin á vorinu 1987. Hvað fengum við mikið til vegagerðar á árinu 1987? Það var 1,16% af þjóðarframleiðslu í staðinn fyrir 2,4% sem fyrirheitin voru um. Í staðinn fyrir 1,4% á árinu 1988 og þótti öllum lítið þá. Að þetta skuli vera á þennan veg á því ári sem er viðurkennt sem eitt mesta góðærisár í sögu íslensku þjóðarinnar, að þá skuli hafa þurft að draga úr framkvæmdum til vegamála. Ég hef trú á því að landsbyggðarfólki muni a.m.k. finnast það nokkuð skrýtið að á mesta þensluári í framkvæmdum á landinu hafi verið talið nauðsynlegt að draga úr framkvæmdum til vegamála á meðan byggðar voru tvær Kringlur hér í Reykjavík: og fjármögnun önnur eftir því í eyðslu, þá var þetta afrek tveggja samgrh. Sjálfstfl.
Eitt er víst að ekki hefur þensla á þessum vettvangi skapað verðbólgu í landinu. Hefur kannski gert það að verkum að það hefur dregið frekar úr þenslu, kannski um 1%. Það er kannski það eina sem samgrh. Sjálfstfl. getur hælt sér af í sambandi við framkvæmd vegáætlunar á árinu 1987.
Þetta er formáli að því sem hv. 1. þm. Vesturl. var að segja hér áðan. Og mér þykir það frekar leiðinlegt að það skuli hafa lent í hans hlut að mæla fyrir vegáætluninni núna og setja stimpil á það sem gert var í fyrra. Ég veit það af skiptum mínum við hv. þm. að hann hefur mikinn hug á því að til þessara framkvæmda fari meira fé en á síðasta ári og lagt er til í ár. Þess vegna finnst mér það hálfnöturleg staðreynd að þessi hv. þm. skuli koma hér upp í ræðustól og segja það að í ár sé meiru fé ráðstafað til þessara framkvæmda, til þessa þáttar í þjóðarbúinu en áætlað var á síðasta ári. Ekkert er meira öfugmæli. Hitt er alveg rétt að vegna aukinnar veltu og aukinna sértekna vegasjóðs þá er til nokkru meira fé í vegasjóði af þeim tekjum en áætlað var. En það er bara allt annar þáttur en þau loforð sem okkur voru gefin og þjóðinni voru gefin hér á vordögum á síðasta ári. Og hvað skyldi það hafa verið sem þjóðinni var lofað þá? Henni var lofað þá samkvæmt verðlagi síðasta árs 3 milljörðum 816 þús. kr. til vegaframkvæmda. Þessu fé var að vísu ekki öllu ráðstafað beint út í vegáætlun en þetta var lagt fram og þetta var notað sem áróðursplagg fyrir stuðningsflokka ríkisstjórnarinnar vítt um landið að að þessu væri stefnt á næstu árum.
Efndirnar eru þær að þeir koma með vegáætlun og segja við þjóðina að þeir séu að bæta við fjármagni miðað við þá vegáætlun sem var í gildi. Bæta við fjármagni! En það sem hefur verið skorið niður miðað við verðlag síðasta árs er 1 milljarður 463 þús. kr. Svo koma þessir menn hingað og það er haft eftir þeim í fjölmiðlum að það sé verið að bæta við fjármagni til vegaframkvæmda. Er hægt að bjóða bæði þm. og almenningi í landinu upp á slíkan málflutning og upp á slíka fréttatúlkun? Ég mótmæli slíku.
Og ekki nóg með það að þannig séu málin lögð fyrir hv. alþm. og hv. kjósendur og almenning í landinu heldur er í vegáætlun og í nál. talað um að það skuli geymdar til næsta árs frá árinu í ár tæpar 300 millj. kr. Og til að sýna það að það eigi nú að ráðstafa þessu fé, að þetta fé verði ekki sett beint í ríkiskassann, þá er gert alveg nákvæmlega eins og gert var á síðasta vori, það er stillt upp áætlun um það hvað skuli vera miklir peningar til þessara eða hinna framkvæmda á næsta ári. Og eins og hv. 1. þm. Vesturl. las hér upp áðan, þá var farið það langt í þessu máli að það er sundurliðað, það er sundurliðað hvernig þetta geymslufé skuli notað á næsta ári! Skyldi það hafa verið vegna þess að hv. 1. þm. Vesturl. hafi efast um það að þetta mundi halda ef þetta yrði í einni summu geymt á milli ára? En eru nokkuð meiri líkur fyrir því að á næsta ári verði þessir peningar notaðir til þessara framkvæmda sem þeir eru áætlaðir á annan veg en þann að það verði aðeins geymd stærri summa af sértekjum vegasjóðs til ársins 1990? Eru nokkrar líkur fyrir því að áætlanagerð, sem lögð er fyrir hv. alþm. núna, ekki á kosningaári, standist frekar en það plagg sem lagt var hér fyrir hv. Alþingi og samþykkt á síðasta vori? Ég tel það ekki og þess vegna tel ég það vera í fyrsta skipti sem sértekjur vegamála eru teknar beint inn í ríkiskassann og þar fá þær að dúsa, að vísu með svolítið sérstöku yfirbragði þar sem búið er að segja hvernig þessum sértekjum skuli eytt á næsta ári. Það er ekkert um það að tryggt sé að sértekjur næsta árs verði ekki geymdar á sama máta í ríkiskassanum eins og núna er og var gert á síðasta ári.
En fyrst verið er að tala um aukatekjur eða umframtekjur vegasjóðs þá held ég að það sé rétt að það komi hér fram að fram á síðasta haust gerðu hv. þm. sér ekki grein fyrir því að sértekjur vegasjóðs á síðasta ári mundu verða þó nokkuð meiri en gert var ráð fyrir. Það var ekki fyrr en á fundi í Stykkishólmi með samgrh. að þetta var upplýst. Hæstv. samgrh. upplýsti þá að hann mundi standa fast á því að þessir peningar yrðu teknir í vegasjóð og ráðstafað vegna framkvæmda 1987. Við erum reyndar að fá þessa peninga inn núna og þeim er ekki ráðstafað fyrr en 1989. Það gefur auga leið að það er rangt að geyma þessa fjármuni yfir áramót án þess að þeim sé ráðstafað til framkvæmda á því ári sem tekjurnar skapast. Hvað þá að taka upp þann sið sem hér er tekinn nú upp í sambandi við vegáætlun að geyma hátt í 300 millj. kr. í ríkiskassanum og aðeins að nefna það með óljósu orðalagi mætti nærri því segja að þetta skuli notað til framkvæmda á árinu 1989.
Eins og hv. þm. er kunnugt var á árinu 1982 og 1983 samþykkt hér á hv. Alþingi till. um það að gerð skyldi stefnumarkandi áætlun um vegagerð í landinu og ég held að það væri að mörgu leyti hollt fyrir hv. alþm., ekki síst stjórnarsinna og ekki síst kannski þm. Sjálfstfl. að lesa þær umræður sem hér fóru fram á hv. Alþingi í sambandi við vegamál á þinginu 1981–1982 þegar verið var að leggja drög að því að Alþingi samþykkti að gerð yrði langtímaáætlun í vegagerð. Þá kepptust hv. þm. Sjálfstfl. við þm. stjórnarliðsins um það að flytja hér þáltill. um þessa þætti. Út úr þeim þáltill. varð þessi till. og ég vil undirstrika það að ég held að hv. þm. Sjálfstfl., þar með sjálfsagt núverandi samgrh. og ekki síst fyrrv. samgrh. Sjálfstfl., hafi átt mikinn þátt í þessari samþykkt og töldu að þetta væri það mikið nauðsynjamál fyrir okkar þjóð að við yrðum að leita samstöðu alls þingsins að því að standa að slíkum málum sem þessu. Sem betur fer tókst það. Það tókst. Og á árinu 1983 var síðan lögð hér fram á hv. Alþingi till. um langtímaáætlun í vegagerð sem unnin hafði verið á þar liðnum vetri á undan af þingmannahóp og Vegagerðinni þar sem þm. höfðu fallist á uppbyggingu og ákveðna fjármögnun í vegagerð á landinu á næstu árum.
Ég hugsa að allir hafi verið nokkuð sáttir við þessa áætlun og menn litu á hana sem samþykkta þótt hún fengi ekki fullnaðarafgreiðslu hér á hv. Alþingi og eftir henni hefur verið farið í framkvæmdaröð á undanförnum árum. En menn voru þó ekki að fullu sáttir við áætlunina að einu leyti til þó þeir féllust á hana. Menn vissu að þarna var farið af stað með áætlun í algeru lágmarki til þess að gera mætti ráð fyrir því að á þessum tímabilum sem áætlunin nær yfir mundu menn verða sáttir við þann framkvæmdahraða sem þar var áætlaður. Og í umræðu úti í þjóðfélaginu á árinu 1983 fóru menn strax að benda á það að það væru ótrúlega langir kaflar í þessari áætlun sem væru geymdir of lengi og út fyrir áætlunina. Ég heyrði ekki neins staðar andstöðurödd gegn þessum hugleiðingum.
En hvað gerist svo hér á hv. Alþingi og hjá hverri ríkisstjórninni á fætur annarri þegar til kastanna kemur og á að fara að framkvæma þessa vegáætlun? Það gerist að ár frá ári minnkar það fjármagn sem til vega er áætlað og eins og ég sagði: Á árinu 1987 hefur það ekki verið minna allar götur frá 1964 miðað við þjóðarframleiðslu. Og mér sýnist að það stefni í svipaðan farveg í ár vegna þess að því miður eru þær tölur sem við erum hér með fyrir framan okkur í vegáætlun, ef þróunin í þjóðfélaginu og ástandið í þjóðfélaginu er á þann veg, að þá er mjög hætt við því að þær rýrni í höndunum á okkur og verði rýrari en hér er lagt til grundvallar, þ.e. 15% verðlagshækkun frá síðasta ári. Það er mjög hætt við því að enn haldi það áfram sem hefur gerst á síðustu árum.
Ég vænti þess að hv. þm. líti dálítið yfir skýrslu sem hér var dreift í gær og geri sér grein fyrir þróun mála á þessum vettvangi. Og ég vænti þess náttúrlega ekki síst af hv. stuðningsmönnum ríkisstjórnarinnar — og þar skora ég ekki síst á hv. 1. þm. Vesturl. — að frá þessari ógæfustefnu, óheillaþróun verði snúið og við tökum stærri og stærri prósentu af þjóðartekjum okkar öfugt við það sem gert hefur verið á undanförnum árum til þessara framkvæmda. Annars eru hlutir illa að fara víða í þjóðfélaginu. Það sem hefur gerst á undanförnum árum vegna þess hve fjármagn hefur minnkað til vegamála er að aðstaðan á milli þéttbýlisins hér við Faxaflóa og dreifbýlisins, landsbyggðarinnar, mismunurinn þar á milli er að verða óhagstæðari ár frá ári. Og nú er staðið frammi fyrir því, sem hvarflar ekki að mér að mótmæla, að það verður að láta aukið fjármagn til vegaframkvæmda hér við Faxaflóa, hér á Reykjavíkursvæðinu vegna þess að þær framkvæmdir sem voru í lagi á árunum 1982–1983 og kannski lengur eru núna að verða úreltar, byggja verður upp ný samgöngumannvirki hér á Reykjavíkursvæðinu og Reykjanessvæðinu og það þarf að láta landsbyggðina bíða vegna þess að ekki var notaður sá tími sem átti að nota til að byggja upp vegakerfið á landsbyggðinni, þ.e. það tímabil sem liðið hefur frá samþykkt vegáætlunar. Það hlaut að liggja fyrir að endurnýjun á vegakerfi hér umhverfis Reykjavík á aðalþéttbýlissvæðinu ætti sér stað með vissu millibili og gera varð ráð fyrir því að ljúka ákveðnum framkvæmdum úti á landi áður en farið væri að endurbyggja vegakerfið hér á Reykjavíkursvæðinu.
Ég endurtek það að ég vænti þess að hv. stjórnarsinnar — ég veit það að stjórnarandstæðingar hér hefðu staðið sameinaðir að því að veita mun meira fjármagni til vegamála heldur en gert var bæði í fyrra og er samkvæmt vegáætlun nú — að hv. stjórnarsinnar geri sér grein fyrir því hvernig þróunin hefur verið og að frá þessari stefnu þarf og verður að hverfa.