09.05.1988
Sameinað þing: 81. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7729 í B-deild Alþingistíðinda. (5817)

Fréttir Ríkisútvarps

Júlíus Sólnes:

Virðulegi forseti. Að gefnu tilefni sé ég mig knúinn til að kveðja mér hljóðs um þingsköp fyrir hönd þingmanna Borgarafl., en við lýsum yfir undrun okkar á fréttaflutningi Ríkisútvarpsins af þingstörfum laugardagskvöldið 6. maí sl. Þar sagði þingfréttaritari m.a. að forseti Sþ. hefði vítt þingmenn Borgarafl. fyrir að vera ekki viðstaddir atkvæðagreiðslu um flugmálaáætlun sem þá var til afgreiðslu. Hér er hallað réttu máli og kastað rýrð á þingmenn Borgarafl.

Hið sanna í málinu er að á fundi í Sþ. laugardaginn 6. maí voru óvenjumargir þingmenn stjórnarliðsins fjarverandi. Þingmenn Borgarafl., sem sátu fundinn, utan tveir sem höfðu boðað lögmæt forföll, höfðu ákveðið að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um flugmálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Gerði formaður flokksins, Albert Guðmundsson, grein fyrir þeirri afstöðu við atkvæðagreiðsluna. Borgarafl. er ekki á móti flugmálaáætluninni sem slíkri, en hefði kosið að hafa hana öðruvísi.

Vegna þess hve marga stjórnarþingmenn vantaði gekk illa að knýja fram lögmæta atkvæðagreiðslu. Það er ekkert nýtt því á yfirstandandi þingi hefur oft gengið erfiðlega að afgreiða mál ríkisstjórnarinnar. Eru það oft stjórnarandstöðuþingmenn sem hafa það hlutverk að gera atkvæðagreiðslur lögmætar, en meiri hluti hv. þm. verður að vera viðstaddur til þess að svo megi verða.

Við atkvæðagreiðslu um 1. gr. í till. um flugmálaáætlun greiddu 32 þingmenn, sem er meiri hluti þingmanna, atkvæði með handauppréttingu við þriðju tilraun forseta til að knýja fram lögleg úrslit. Við atkvæðagreiðslu um 2. gr. töldust aðeins 31 hönd á lofti og atkvæðagreiðslan því ekki lögleg. Einn stjórnarliða hafði bersýnilega laumast á brott. Var þá gripið til þess ráðs að hafa nafnakall. En hjáseta hv. þm. kemur þá fram og þar með teljast slík atkvæði með.

Strax og þingmenn Borgarafl. höfðu gefið til kynna afstöðu sína að viðhöfðu nafnakalli gengu þeir út úr þingsalnum, enda komið langt umfram þann tíma á laugardagseftirmiðdegi sem samkomulag hafði verið gert um að ljúka þingfundi. Á leiðinni út úr þinghúsinu var okkur tjáð að enn ætti eftir að afgreiða eitt mál fyrir utan flugmálaáætlun. Við hröðuðum okkur aftur inn í þingsalinn, en þá var forseti Sþ. að slíta þingfundi án þess að taka fyrir fleiri mál. Vítti forseti þingmenn almennt fyrir að vera ekki viðstaddir atkvæðagreiðslu sem þeim ber skylda til skv. þingsköpum.

Þingmenn Borgarafl. voru viðstaddir allar atkvæðagreiðslur þennan laugardag. Það voru því aðrir hv. þm. sem forseti var að víta með orðum sínum. Engu að síður sá þingfréttaritari Ríkisútvarpsins ástæðu til þess að skýra frá því í kvöldfréttatíma Ríkisútvarpsins að forseti hefði vítt þingmenn Borgarafl. fyrir að gegna ekki þingskyldu sinni.

Við teljum nauðsynlegt að leiðrétting á þessu sé gerð úr þessum háa ræðustól því að við viljum ekki una því að það séu bornar rangar sakir á þingmenn Borgarafl..