09.05.1988
Sameinað þing: 81. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7732 í B-deild Alþingistíðinda. (5822)
467. mál, vegáætlun 1987--1990
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Það er ekki ætlan mín að taka þátt í deilum um vegáætlun fyrir árið 1988. Við getum allir verið sammála um að það þyrfti að hafa meira fjármagn til vegamála og ráðast í meiri framkvæmdir því að við erum sammála um að vegamálin eða samgöngumálin almennt eru eitt þýðingarmesta byggðamál á Íslandi og hefur hvað mest að segja fyrir byggðaþróun hér á landi hvernig sem við tölum um byggðamál almennt.
Ég rakti í framsögu fyrir vegáætlun fyrir árið 1988 að ég held það helsta sem þessi endurskoðun nú ber með sér, sem er ekki regluleg endurskoðun vegáætlunar, hún á að fara fram á næsta ári, heldur tilkomin vegna þess að það kom viðbótarfjármagn inn í framkvæmdaáætlun fyrir árið 1988 sem var eðlilegt að Alþingi tæki ákvörðun um með hvaða hætti yrði ráðstafað og fjvn. var algerlega sammála um að leggja þær brtt. fram sem hér eru til umræðu á þskj. 1024.
Ég get endurtekið það, sem kannski er nægilegt svar til hv. síðasta ræðumanns, að það er alveg hárrétt að það þarf meira fjármagn og það er einnig hárrétt að í vegáætlun á síðasta ári var gert fyrir hárri upphæð sem var engan veginn séð fyrir hvernig yrði útveguð og það var einnig staðreynd að það var ekki samkomulag í síðustu ríkisstjórn um hve mikið fjármagn skyldi útvegað til að fjármagna meiri vegaframkvæmdir. Þetta liggur allt fyrir og þarf ekki að rifja það upp.
En það er líka staðreynd í till. til þál. sem hér liggur fyrir að miðað við verðlagsforsendur tillögunnar eykst ráðstöfunarfé á árinu 1988 um 16% frá árinu 1987 og um 6% frá gildandi vegáætlun 1988. Þess vegna erum við að tala um brtt., sem hér liggur fyrir, sem er eðlilegt að Alþingi fjalli um. Auðvitað hljóta allir hv. þm. að fagna því að það er þó eitthvað jákvætt í þessum málum.
Ég vil leiðrétta hv. 4. þm. Vesturl. að því leyti til að hann talar um óljóst orðalag um ráðstöfun á 285 millj. í tillögunni. Ákvörðun fjvn. um að skipta fjármagni til framkvæmda 1989 milli kjördæmanna er þvert á móti ákvörðun sem ekki er hægt að breyta ef Alþingi samþykkir þannig að hér er ekki óljóst mál heldur er verið að negla fasta ákvörðun sem ekki er hægt að breyta nema með samþykkt Alþingis.
Ég skal ekki tefja umræður, herra forseti, því að hér er naumur tími, en ég vil aðeins segja að ég tel nauðsynlegt við formlega endurskoðun vegáætlunar á næsta ári að það fari fram endurmat á verkefnum sem eftir er að framkvæma og ekki hvað síst verkefnum sem við flokkum undir sérverkefni. Þar á ég við jarðgöng, brýr yfir firði og jafnvel veg undir firði. Það er staðreynd, sem ég geri ráð fyrir að hv. alþm. átti sig á, að það er eftir að fjármagna dýrustu og erfiðustu kaflana í vegakerfi þjóðarinnar. Þess vegna er fullkomin ástæða til þess að menn geri sér grein fyrir því hvernig staðan er í þessum málum og kalli eftir meiri áætlunargerð í sambandi við þessi verkefni. Ég held að það sé ástæðulaust annað en minna á þetta nú þegar tiltölulega stutt er í endurskoðun á vegáætluninni fyrir næstu ár.
Ég vil einnig í því sambandi benda á þýðingarmikinn þátt sem hefur verið mikil aukning á núna á síðari árum og það er í sambandi við viðhald og styrkingu vega. Í vegáætlun, í langtímaáætluninni sjálfri, er eitt aðalmarkmiðið að allir aðalvegir landsins geti borið tíu tonna öxulþunga. Þetta er þýðingarmikið atriði í sambandi við uppbyggingu vegakerfisins þó að okkur þyki mörgum hægt ganga. Ég tel að það sé alveg hárrétt stefna sem Vegagerðin bendir á og felst í því að þeir telja að það sé eðlilegt að um leið og búið er að byggja malarvegina upp og styrkja þá að þessu leyti til verði samsíða lagt á þá bundið slitlag eða klæðning þannig að við missum ekki þann árangur sem þar með er fenginn í okkar misjöfnu veðrum, ryki, vatnavöxtum og öðru slíku eins og þið vitið hvernig fer með malarvegi. Þetta held ég að sé nauðsynlegt að undirstrika og einmitt styrkja Vegagerðina í þessum áformum sem hefur tekist víða með miklum ágætum.
Það væri freistandi að ræða við hv. þm. Kjartan Jóhannsson um hans skilgreiningu á því hvað þéttbýlið við Faxaflóa hefur látið mikið fjármagn í vegagerð úti um land. Ég ætla ekki að eyða tíma í það. Þetta er svo augljós röksemdafölsun og vitleysa að ég veit að hann hefur sagt þetta meira til að ýta undir að upp kæmu fjörugar umræður en að hann meinti þetta í raun og veru. Auðvitað vitum við að vegakerfið byggist upp á því að allir, hvort sem þeir búa í þéttbýli eða dreifbýli, njóti þess og allir leggja jafnt til þessara hluta sem einstaklingar.
Ég held þess vegna að ég geti endað mál mitt með því að ég vonast til þess að hv. þm. og Alþingi beri gæfu til þess að menn standi saman um að auka þungann í vegagerð og standa saman um að reyna að flýta öllum framkvæmdum í vegagerð í landinu því að samgöngurnar, ekki síst vegasamgöngurnar, eru eitt af því sem er kjölfestan í þeirri byggðaþróun og þeirri byggðastefnu sem við erum allir sammála um að þurfi að vera í heiðri höfð á þessu landi og hafa forgang.