09.05.1988
Sameinað þing: 81. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7745 í B-deild Alþingistíðinda. (5830)
467. mál, vegáætlun 1987--1990
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Ég fagna því að hv. þm. skuli hafa tekið þátt í þessari vegaumræðu frekar en leit út fyrir að verða á laugardagseftirmiðdaginn. Þeir hafa vakið athygli á þeirri þróun sem átt hefur sér stað á undanförnum árum og því að nú er verið að hlaupa frá þeim loforðum sem gefin voru hér á síðustu vordögum um það að staðið yrði við langtímavegáætlun og varið 2,4% af þjóðartekjum til vegaframkvæmda. Ég þakka sérstaklega 1. þm. Vesturl. fyrir það að hafa í ræðu sinni áðan viðurkennt þessa staðreynd, að núv. ríkisstjórn hafi fallið frá fyrirheitum fyrri ríkisstjórnar um það að verja til viðbótar við sértekjur til vegamála 1463 millj. kr. miðað við verðlag þá. Það er sem sagt viðurkennt af frsm. fjvn. að þannig hefur verið staðið að málum og það er viðurkennt af frsm. fjvn. að það er ekki verið að fjalla um vegáætlun fyrst og fremst út af því að það öfluðust nokkuð auknar sértekjur, heldur vegna þess að það er verið að skerða stórlega það fjárframlag sem til þessara mála átti að verja samkvæmt vegáætlun 1987–1990.
Til viðbótar aðeins, herra forseti: Hv. 1. þm. Vesturl. taldi að það fjármagn sem nú er geymt á milli ára væri í öruggum höndum vegna þess að búið væri að skipta því niður á ákveðnar framkvæmdir. Ég efast um að svo sé vegna þess að þó að við samþykkjum nú vegáætlun með ákveðnum tölum til ákveðinna framkvæmda eru það ekkert heilagri tölur en þær tölur sem ákveðnar voru í vegáætlun sem við samþykktum á síðasta vori og nú hefur verið fallið frá.