09.05.1988
Sameinað þing: 81. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7758 í B-deild Alþingistíðinda. (5849)

31. mál, klak- og eldisstöð fyrir sjávarfiska

Frsm. atvmn. (Guðmundur H. Garðarsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um till. til þál. um klak- og eldisstöð fyrir sjávarfiska og er nál. frá atvmn.

Nefndin hefur fjallað um tillöguna á fundi sínum og sent hana til umsagnar og mælir með því að henni verði vísað til ríkisstjórnarinnar til athugunar.

Fjarstaddir við afgreiðslu málsins voru Birgir Dýrfjörð og Eggert Haukdal, en undir nál. rita Valgerður Sverrisdóttir, formaður, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, fundaskrifari, Guðmundur H. Garðarsson, frsm., Ólafur Þ. Þórðarson og Geir Gunnarsson.