09.05.1988
Sameinað þing: 81. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7763 í B-deild Alþingistíðinda. (5863)
165. mál, Vesturlandsvegur
Frsm. allshn. (Guðni Ágústsson):
Hæstv. forseti. Fyrir liggur nál. frá allshn. á þskj. 1035, um nýja legu Vesturlandsvegar um Hvalfjörð og Grunnafjörð.
Nefndin ræddi þessa till. á allmörgum fundum sínum og kallaði á fund sinn Helga Hallgrímsson, forstjóra tæknideildar Vegagerðar ríkisins. Nefndarmenn eru sammála um að mæla með samþykkt tillögunnar með eftirfarandi breytingu:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta kanna hvort hagkvæmt sé að gera göng undir Hvalfjörð eða brú í fjarðarmynni.
Fyrirsögn till. verði: Till. til þál. um legu Vesturlandsvegar um Hvalfjörð.“
Fjarverandi við afgreiðslu málsins voru Pálmi Jónsson og Kristín Halldórsdóttir.
Undir þetta nál. skrifa Guðni Ágústsson, Sverrir Hermannsson, Guðrún Helgadóttir, Sigbjörn Gunnarsson og Jón Kristjánsson.