09.05.1988
Sameinað þing: 81. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7768 í B-deild Alþingistíðinda. (5874)

394. mál, lækkun raforkukostnaðar í gróðurhúsum

Frsm. atvmn. (Valgerður Sverrisdóttir):

Hæstv. forseti. Ég ætlaði aðeins að þakka hæstv. iðnrh. fyrir góðar undirtektir við till. Ég sætti mig mjög vel við þann skilning sem hann leggur í till. eins og hún er afgreidd frá nefndinni og álít að aðrir nefndarmenn muni einnig hafa lagt þennan skilning í till.