09.05.1988
Efri deild: 95. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7780 í B-deild Alþingistíðinda. (5907)

126. mál, mat á sláturafurðum

Frsm. landbn. (Egill Jónsson):

Herra forseti. Það var út af síðustu ræðu sem mér kom í hug máltækið „Litlu verður Vöggur feginn“. Mér sýnist kannski að hv. síðasti ræðumaður hefði átt að kynna sér þetta mál ofurlítið betur ef hann hefði ekki í þessum efnum eins og stundum áður verið að leitast við að sækja mál af meira kappi en forsjá, að ég tali nú ekki um þekkingu í þessum efnum.

Það er vert að leggja á það áherslu og undirstrika sérstaklega að það hafa orðið frá árinu 1966 gífurlega miklar breytingar á sláturhúsum hér í landi og hreinlætisaðstöðu. Ég get vel ímyndað mér að það sem kann að vera á verri kantinum um þessar mundir sé eitthvað svipað og það sem var best árið 1966. Það hafa orðið gífurlega miklar breytingar og endurbætur í þessum efnum þegar til heildarinnar er litið. Þær kröfur sem voru gerðar fyrir tveimur áratugum hafa vissulega skilað sér gagnvart langflestum sláturhúsum landsins. Þetta hefur hins vegar ekki gerst alfarið, eins og ég reyndar tók fram fyrr í þessari umræðu, og það er aðalatriði málsins að enn hefur ekki fengist fullnægjandi aðstaða í öllum þessum sláturhúsum. En ég minni á að auðvitað er þessi starfsemi háð mjög ströngu heilbrigðiseftirliti. M.a. af því að hv. ræðumaður vitnaði til þeirrar umræðu sem fór fram á Alþingi varðandi sláturhúsið á Bíldudal liggur fyrir að slíkt eftirlit og slíkar kröfur eru einmitt býsna harðar.

Þetta finnst mér alveg nauðsynlegt að komi fram því að ég get alveg eins átt von á því út frá þessari umræðu að það verði farið að bera það út um borgina og reyndar víðar að það séu fyrir hendi háskalegar og hættulegar aðstæður í sambandi við slátrun og meðferð sláturafurða. Það gæti vel hent þá sem eru í sífelldum eltingarleik um atkvæði og nota til þess öll möguleg og ómöguleg ráð eins og ég hef reyndar nýlega rakið í þessari hv. deild.

Það er þess vegna full ástæða til að leggja á það áherslu að hér er ekkert stórmál á ferðinni og að hér er vel séð fyrir heilbrigðiskröfum og að öll þessi starfsemi er háð mjög ströngu eftirliti kjötskoðunarlækna þannig að það er mikill óþarfi að gera hér einhvern úlfalda úr mýflugu við afgreiðslu þessa máls og þar af leiðandi geta menn stutt það með bærilega góðri samvisku.