09.05.1988
Efri deild: 96. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7803 í B-deild Alþingistíðinda. (5927)

293. mál, áfengislög

Jón Magnússon:

Herra forseti. Örfá orð út af orðum hv. 7. þm. Reykv. og örfá orð út af orðum hæstv. landbrh., fyrrv. dómsmrh.

Þegar hv. 7. þm. Reykv. kvartaði yfir því að sér virtist sem sá sem hér stendur væri farinn að reyna að kenna þeim sem flytja þær brtt. sem hér liggja fyrir lagasmíð og taldi að honum færist nú ekki þar sem sá sem þess freistaði hefði komið málum svo bögglulega frá sér að því hefði í öllu þurft að breyta, þá vil ég í fyrsta lagi geta þess ... (SvG: Ég sagði ekki breyta. Ég sagði henda.) henda já, þá vil ég í fyrsta lagi geta þess ... (SvG: Ég vitna í Sverri.) já, það er ánægjulegt að vita til þess að þm. telur hann orðið marktæka heimild. (SvG: Það er rétt hjá þér.) Og þá er nú fokið í flest skjól fyrir hv. þm.

En það er nú þannig þm. til upplýsingar að sá sem þetta segir hefur flutt tvö frv. á hinu háa Alþingi. Annað hefur nú þegar orðið að lögum og ég geri ráð fyrir að hv. þm. hafi samþykkt það með handauppréttingu. Sú breyting varð hins vegar á því að það var gert víðtækara í meðförum Alþingis heldur en ég hafði lagt til. (SvG: Það þótti gallað.) Að öðru leyti liggur fyrir í meginatriðum það frv. sem var lagt fram af mér og fleirum og sem er til afgreiðslu hér. Ég veit að hv. þm. þykir það gallað og út af fyrir sig kann vel að vera að það hefði þurft að bæta þar við. Þannig er með ýmis frv. og til þess er Alþingi að fjalla um þau mál sem fram eru borin, skoða þau og betrumbæta. Það er hlutverk hv. Alþingis, líka hv. 7. þm. Reykv. ef hann hefur eitthvað misskilið hlutverk sitt. Ég bendi honum á og það ætti hann að vita samt sem áður af langri þingreynslu að það eru fá lagafrv. sem fara algjörlega óbreytt í gegn á Alþingi.

Það er nú einu sinni þannig að lög eru með ákveðnum hætti. Þau eru kaflaskipt. Þau er sett upp með ákveðnum hætti þannig að þau séu í rökréttu framhaldi og samhengi. Ef áfengislögin eru skoðuð í heild þá sést þetta mjög greinilega. Þannig liggur fyrir út frá lagalegu sjónarmiði að þær brtt. sem hér eru lagðar fram eru með öllu óeðlilegar með tilliti til uppbyggingar áfengislaganna.

Ég bendi á í því sambandi og ítreka það sem ég sagði áðan um 1. gr. áfengislaganna þar sem skýrt er tekið fram um þau markmið sem brtt. á þskj. 1116 tekur til. Þau atriði eru í 1. gr. áfengislaganna. Það þarf ekki að samþykkja þessa brtt.

Í annan stað vil ég benda á það að í V. kafla laganna er fjallað um meðferð áfengis í landinu, en það sem flm. eru að gera er að þeir eru að leggja til breytingu á IV. kafla laganna. Það hefði verið eðlilegra að finna slíkri tillögu, slíkri hugsun stað í V. kafla eða jafnvel frekar í VII. kafla laganna sem fjallar um áfengisvarnir.

Á þetta vil ég benda til að undirstrika það að annaðhvort er um algjöra vanþekkingu að ræða af hálfu flm. þessara brtt. á áfengislögunum eða hitt, ef ekki er um vanþekkingu að ræða, að þá eru þeir einfaldlega að koma hér með sýndartillögur til þess að drepa málum á dreif. Um annað getur ekki verið að ræða.