09.05.1988
Efri deild: 96. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7804 í B-deild Alþingistíðinda. (5928)
293. mál, áfengislög
Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):
Herra forseti. Hv. 8. þm. Reykv. vitnaði hér í 1. gr. áfengislaganna. Ef farið væri eftir ráðleggingum allra sérfræðinga um þessi mál og tekið mark á þeim, þá er ljóst að þessi samþykkt sem núna er verið að gera í þessu frv. gengur þvert á markmið 1. gr. áfengislaganna og þess vegna er það að við flm. þessarar tillögu viljum leggja áherslu á það að Alþingi geri það, að þrátt fyrir það að með samþykkt þessa frv. sé verið að ganga á móti 1. gr. laganna þá skuli við reglugerðarsetningu um sölu og dreifingu á áfengi gætt þeirra sjónarmiða sem ég hef ítrekað lýst að komi fram í brtt. á þskj. 1116.
Ég vil taka undir orð hv. 7. þm. Reykv. þar sem hann mótmælir þeim ásökunum á hendur okkur sem flytjum þessa till. að hér sé um sýndarmennsku og hræsni að ræða. Að sjálfsögðu greiddum við atkvæði á móti frv. við 2. umr. Við vildum ekki trúa því fyrr en að lokinni þeirri atkvæðagreiðslu að þetta yrði samþykkt og þetta er fyrsta tækifærið sem við fáum til að flytja brtt. eftir að sú niðurstaða liggur fyrir. Og þá er úrræðið, eins og ég gat um í máli mínu hér í upphafi þessarar umræðu, að reyna að beina framkvæmdinni inn á þá braut að sem minnst tjón verði af.
Ég vil því mótmæla því að hér sé um órökrétt vinnubrögð, órökrétta tillögu að ræða. Ég vil þvert á móti leggja áherslu á að ég get ekki skilið að nokkur einasti þm. hér í hv. Ed. fari að greiða atkvæði á móti þessum brtt.