09.05.1988
Neðri deild: 98. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7814 í B-deild Alþingistíðinda. (5961)
360. mál, umferðarlög
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Frv. til laga um breyt. á umferðarlögum sem hér er á dagskrá felur í sér, eins og fram hefur komið, tvö meginatriði. Í fyrsta lagi að taka upp breytt skráningarkerfi bifreiða, svokallað fast númerakerfi, og í öðru lagi er farið fram á að veitt verði heimild til þess að stofnað verði hlutafélag um rekstur þeirrar starfsemi, sem nú er á vegum Bifreiðaeftirlits ríkisins, og sú stofnun sem slík lögð niður. Þetta eru tvö meginatriði frv. eins og glögglega kom fram hér í máli hv. 2. þm. Vesturl.
Sannast sagna kemur það nokkuð á óvart að frv. skuli vera rekið hér áfram á síðustu dögum þingsins. Í fyrsta lagi með tilliti til þess að annar meginþáttur frv. var til afgreiðslu á síðasta þingi og hlaut þá ekki fylgi Alþingis, þ.e. að taka upp svokallað fast númerakerfi, og í öðru lagi vegna þess að frv. var ekki á forgangslista hæstv. ríkisstjórnar um þau mál sem taka skyldi til afgreiðslu á þessu þingi. Frv. hefur heldur ekki hlotið einróma stuðning í stjórnarflokkunum enda þótt leyft hafi verið að flytja það sem stjórnarfrv., eins og stundum hefur áður tíðkast með frv. til laga um breyt. á umferðarlögum sem hafa verið með þeim hætti að þar hafa stjórnarliðar á hverri tíð getað stutt mörg atriði sem fram hafa komið í þeim frumvörpum en verið andvígir öðrum. Þrátt fyrir það hefur sú hefð tíðkast um þennan málaflokk að frumvörpin hafa verið flutt sem stjórnarfrumvörp.
Nú er það sannast sagna að ég hef ýmislegt við þetta mál að athuga, svo sem verið hefur á fyrri tíð, og sé ekki ástæðu til annars en taka mér tíma til þess að ræða það allítarlega á þeim dögum sem eftir lifa þessa þings. Í fyrsta lagi ef litið er á þann þátt málsins sem lýtur að því að leggja niður Bifreiðaeftirlit ríkisins og taka upp heimild í lög til þess að setja á stofn hlutafélag sem annist þá starfsemi sem nú er á höndum Bifreiðaeftirlitsins. Ég hrökk vitaskuld nokkuð við, væntanlega eins og fleiri bifreiðaeigendur í þessu landi, þegar tryggingagjöld bifreiða hækkuðu í vetur um 60–100% eftir því hvernig það væri reiknað. En með því að taka upp heimild nú til þess að setja á stofn hlutafélag til að annast þessi viðfangsefni er einmitt gert ráð fyrir að tryggingafélögin verði veigamikill þáttur í því að bera uppi eignarhlut í því hlutafélagi og í þeirri starfsemi sem það nýja hlutafélag mundi hafa með höndum. Ég ber nokkurn efa í brjósti, eftir þá reynslu sem við höfum haft af tryggingafélögunum nú fyrir fáum mánuðum, að rétt sé að fela þeim aukið verksvið og selja bifreiðaeigendur undir þá starfsemi í verulega auknum mæli frá því sem verið hefur. Nær lagi væri að setja á fót sérstaka rannsókn á starfsemi þessara fyrirtækja, tryggingafélaganna, til þess að komast að því hvernig þau undarlegheit megi gerast að á sama tíma sem bifreiðum fjölgar í landinu um 15–20 þúsund á ári, á síðasta ári voru fluttar inn 25 þúsund bifreiðar en að sjálfsögðu var nokkuð afskráð á móti, þá skuli bifreiðatryggingagjöld þurfa að hækka um 60–100%. Þessu hefur ekki verið svarað svo viðhlítandi sé og ég hefði gjarnan viljað sjá svör við slíkum spurningum áður en ég samþykki að færa skoðun ökutækja að verulegu leyti eða alfarið undir hlutafélag sem tryggingafélögin í landinu bæru uppi.
Í nál. sem fylgir sem fskj. og í ýmsum fskj. með frv. er fjallað um þessi mál. Þar kemur fram í fyrsta lagi hver eiga að vera verkefni Bifreiðaskoðunar Íslands hf., hvernig ætlunin er að staðið skuli að skoðun ökutækja o.s.frv. o.s.frv. Sumpart var það skýrt hér af hv. 2. þm. Vesturl., Valdimar Indriðasyni. Ég skal ekki fara um það efni mörgum orðum en það er gert ráð fyrir að reistar skuli bifreiðaskoðunarstöðvar, ein ærið myndarleg á höfuðborgarsvæðinu, sem væntanlega er ekki vanþörf á, og síðan þrjár úti á landsbyggðinni. Ekki kemur fram hvar þessar stöðvar skuli staðsettar og ekki kemur fram hvernig bifreiðaeigendum verður gert að tengjast þeirri þjónustu sem þar á að fara fram. En víst er ef niðurstaðan á að verða sú að aðalskoðun bifreiða fari fram í þessum bifreiðaskoðunarstöðvum og að litlu leyti utan þess, e.t.v. að einhverju leyti eins og fram kemur hjá tilteknum bifreiðaverkstæðum, hygg ég að þessu kynni að fylgja ærið óhagræði fyrir bifreiðaeigendur.
Nú vill svo til að til er ein bifreiðaskoðunarstöð í mínu næsta nágrenni, þ.e. á Blönduósi. Þar er yfirbyggð bifreiðaskoðunarstöð og vænta má að hið nýja fyrirtæki, ef á laggir kemst, mundi kaupa þá stöð og hún verði á þann veg í notkun. Þá væri mér nú spurn: Er ætlast til þess að í þeirri skoðunarstöð verði skoðaðar bifreiðir af öllu Norðurlandi allt austan af Langanesi ef ekki skulu vera nema þrjár stöðvar á landsbyggðinni? Mundi það nú ekki verða snúningasamt fyrir Langnesinga og Þistla og aðra slíka að fara af Norðurl. e. að sækja sér þessa þjónustu vestur á Blönduós? Og ef eitthvað kynni að bila í bílnum á leiðinni yrði nú ærið að gera á Blönduósi og skyldi ég ekki út af fyrir sig harma það. En hitt er augljóst að ef menn hafa hugsað þetta eitthvað í því horfi, sem lesa má út úr þessum gögnum sem hér liggja fyrir, er verið að setja af stað kerfi sem bersýnilega er með þeim hætti að þjónustan er færð frá fólkinu í stað þess að færa hana til fólksins eins og á að vera keppikefli í okkar þjóðfélagi eftir því sem föng eru á.
Ég held að sjálfsögðu að komið geti til greina breytingar á því fyrirkomulagi sem gildir um skoðun ökutækja um þessar mundir. Að því hefur nokkuð verið unnið og má vafalaust gera meira af því að fela tilteknum verkstæðum að annast hluta af starfseminnar. En ef meiningin með breytingunni er að færa þetta í það horf að það hafi í för með sér stóraukna fyrirhöfn og kostnað fyrir bifreiðaeigendur í landinu að sækja sér þessa þjónustu og verða við þeirri skyldukvöð, sem á er lögð, að láta skoða sín ökutæki, líst mér ekki á og held að ástæða væri til að staldra við.
Ég held að ástæða sé til þess að fara nokkru fleiri orðum heldur en fram komu hjá hv. 2. þm. Vesturl. um það skráningarkerfi sem frv. gerir ráð fyrir að tekið verði upp og það er út af fyrir sig ekki nýlunda hér á hinu háa Alþingi. Ég hef ekki gáð að því hvenær þetta kom fyrst til sögu hér í lagafrv. en það mun hafa verið snemma á 8. áratugnum. Ég minnist þess að þegar sannaðist að sögusagnir sem haldið var úti um sparnað við að taka upp nýtt skráningarkerfi voru úr lausu lofti gripnar og sú hv. þingnefnd sem þá fjallaði um málið komst að þeirri niðurstöðu að það væri enginn sparnaður að því að taka þetta nýja kerfi upp, nema síður væri, var málið þá fellt.
Þetta atriði í frv. til umferðarlaga sem lá fyrir hinu síðasta Alþingi var einnig fellt, eins og hér hefur komið fram, og ég hygg að það hefði verið ástæða til að hægja nú nokkuð á ferðinni þangað til hægt væri að sýna fram á með einhverjum rökum, sem ekki væru augljós vitleysa, að í þessu fælist eitthvert hagræði. En nú hafa undirlegir gerst. Hér segir í fskj. 1 með þessu frv. undir 5. tölul., skráningarkerfi ökutækja, svo með leyfi hæstv. forseta:
„Öll skráningarskyld ökutæki eru nú skráð í tvöföldu númerakerfi. Annars vegar eru ökutæki skráð skv. númeraskiltum þeim sem á þau eru sett og hins vegar eru þau skráð skv. svokölluðu fastnúmerakerfi er fram kemur m.a. í skráningarvottorði hverrar bifreiðar. Byggist það númer á tveimur bókstöfum og þremur tölustöfum.“
Með þessu er sagt að framkvæmdarvaldið eða það ríkisfyrirtæki sem annast þessi verkefni undir yfirstjórn hæstv. dómsmrh., væntanlega núverandi og fyrrverandi, hafi tekið upp hjá sjálfum sér eða að fyrirmælum hæstv. ráðherra að skrá ökutæki eftir númerakerfi sem Alþingi hefur fellt, ekki einu sinni heldur a.m.k. í tvígang.
Hvað er hér á ferðinni? Ég segi fyrir mig að hér er það á ferðinni að framkvæmdarvaldið, hæstv. ráðherrar, hæstv. núv. ráðherra og hæstv. fyrrv. dómsmrh. væntanlega báðir, og sú ríkisstofnun, sem um málið fjallar og hefur með höndum, óvirða vilja Alþingis og fara sínu fram þrátt fyrir að Alþingi hafi fellt kerfið sem þessir tilteknu handhafar framkvæmdarvaldsins hafa gjarnan viljað koma fram. Að mínum dómi gengur ekki að halda þannig á málum og það væri ástæða til að biðja hæstv. núv. dómsmrh. að gefa Alþingi skýrslu um þennan þátt málsins, hvenær hafi hafist það fyrirkomulag að skrá ökutæki í skráningarvottorðum eftir númerakerfi sem Alþingi hefur hvað eftir annað hafnað. Ég tel ástæðu til þess að slík skýrsla sé sett fram fyrir Alþingi áður en ætlast er til þess að hið sama hv. Alþingi leggi blessun sína yfir slík verk. Ég ætla ekki hér að fara ókvæðisorðum um þetta háttalag. En hér er verið að fara að af hálfu framkvæmdarvaldsins á þann máta að Alþingi getur ekki tekið því þegjandi.
Það er nú einu sinni svo að það er hv. Alþingi sem á að ráða löggjöf í þessu landi og sem setur löggjöf og það er skylda framkvæmdarvaldsins að hlíta þeirri löggjöf. Ef handhafar framkvæmdarvaldsins, þar á meðal hæstv. ráðherrar koma ekki fram þeim málum sem þeir óska á Alþingi þá ber þeim að virða það. En þeir hafa ekki heimild til þess að láta ákvarðanir Alþingis sem vind um eyru þjóta og fara sínu fram engu að síður. Þetta hljóta allir að sjá að er stórlega ámælisvert og mér þætti einkennilegt ef hv. alþm. vildu taka þessu þegjandi og leggja blessun sína yfir. Það þætti mér einkennilegt.
Nú hefur hv. 2. þm. Vesturl. sýnt fram á tvískinnunginn, vitleysurnar, tvöfeldnina í því sem fram kemur í fskj. með þessu frv. að því er varðar svokallaðan sparnað af því að taka upp nýtt númerakerfi. Ég þarf ekki að bæta mörgum orðum við það sem hann sagði um þau efni. Það segir í síðasta fskj. og er haft eftir öðrum af tveimur framkvæmdastjórum Bifreiðaeftirlits ríkisins að sparnaður á árinu 1987 sé áætlaður 20,3 millj. kr. Þetta er vissulega áætlað enda kemur annars staðar fram að uppgjör yfir þetta ár hafi ekki farið fram. Annars staðar í þessum gögnum er sagt að sparnaður ríkisins við að taka upp nýtt fastnúmerakerfi sé einhvers staðar á bilinu 80 millj. kr. ef ég man rétt. Og í fréttum hafa þessar tölur verið hlaupandi manna á milli, væntanlega frá þeim sem standa fyrir þessum málatilbúnaði, allt upp í 300 millj. kr. Allt upp í 300 millj. kr. sem eigi að vera sparnaður af öllu þessu. Og það er búið að halda þessu svo fast að fólki að maður sér það í dálkum dagblaðanna þegar einhverjir vegfarendur eru spurðir að þeir eru farnir að trúa allri vitleysunni, sem sýnir það að með langvarandi og stöðugum áróðri er hægt að koma miklu til leiðar, koma því til leiðar að margir fara að trúa. Þetta er gömul saga og ný.
Í fskj. með frv. sjálfu segir um árið 1986 - og það virðist svo sem það ár sé búið að gera upp þannig að ekki þurfi nú að vera um áætlunartölur að ræða - að rekstrarkostnaður Bifreiðaeftirlitsins árið 1986 hafi verið 106 millj. 172 þús. kr., 106,1 millj. kr. Skráningargjöld þetta ár hafi verið 102,9 millj. kr. Það fer sem sé langleiðina í það að skráningargjöldin ein beri uppi alla starfsemi Bifreiðaeftirlitsins. Það mun þá verða skarð fyrir skildi ef sá tekjupóstur hrekkur til baka, ef það á að verða kannski 300 millj. kr. sparnaður við það að leggja upp með nýtt skráningarkerfi eins og sumir hafa viðrað í fréttum, þeir sem lengst hafa gengið í vitleysunni.
En alls voru tekjustofnar á vegum Bifreiðaeftirlitsins árið 1986, þ.e. skoðunargjald, skráningargjald og prófgjald 186,9 millj. kr. Þannig að það hefur nú ekkert verið sparað að hafa gjaldskrána í lagi yfir þau atriði sem almenningur þarf að borga þegar hann er að sækja sér þá þjónustu sem Bifreiðaeftirlitið hefur haft með höndum. Og ég á von á því að það verði heldur ekki gert ef hið nýja fyrirtæki kemst á laggir, þ.e. Bifreiðaskoðun Íslands hf. eins og það er skírt í þessum gögnum, sérstaklega með tilliti til þess ef tryggingafélög, bifreiðatryggingafélögin eru nú komin þar verulega til vegs og vanda. Þá á ég ekki von á því að það verði sparað að hafa gjaldskrána nokkuð rýmilega sem almenningur þarf að borga þegar hann er að sækja þá þjónustu sem þetta hlutafélag á að inna af höndum.
Það sem sagt kemur í ljós að það er auðvitað ekki fótur fyrir því að það sé einhver sparnaður af þessu. En það má þó vera að það ætti að hafa verið sparnaður af því ef framkvæmdarvaldið í þessu tilliti, hæstv. dómsmrh., núv. og fyrrv. og starfsmenn eða forstöðumenn Bifreiðaeftirlitsins, sem nú eru a.m.k. tveir, ef þessir handhafar framkvæmdarvaldsins hefðu látið sér það lynda að hlíta ákvörðunum Alþingis en taka ekki upp - án þess að Alþingi hafi heimilað og eftir að Alþingi hefur fellt hvað eftir annað - tvöfalt skráningarkerfi, sem a.m.k. sýnist ofrausn og er, eins og ég hef áður vikið að, fjarri öllu lagi af hálfu þessara aðila.
Ég gæti kannski rakið það hvers konar skráningar það eru sem kynnu að sparast við þetta nýja kerfi. Víst er að nýskráning sparast ekki og víst er að eigendaskráning sparast ekki. Miðað við núverandi kerfi er ein tegund umskráningar sem menn verða að ganga í gegnum, en það er ef ökutæki sem skráð er í einu umdæmi er keypt eða flutt yfir í annað umdæmi. Þá verður ekki hjá því komist eftir núverandi kerfi að umskrá ökutækið. Og það er nú svo fyrir að þakka að þeir sem ráða fyrir gjaldskrá Bifreiðaeftirlitsins hafa séð ástæðu til þess að tylla verulega á kostnaðinn við þessa umskráningu. Ef ég veit rétt þá mun hún nýlega hafa verið komin upp í 4500 kr. Nýskráning mun hafa verið fyrir ekki löngu síðan 1500 kr., eigendaskráning 1500 kr., umskráning innan sama umdæmis er 4500 kr., og það er það langdýrasta, en umskráning á milli umdæma er nokkuð lægri eða líklega um 2000 kr.
Það er engin ástæða til umskráningar eftir núverandi kerfi ef ökutæki skiptir um eigendur innan sama umdæmis. Ef Reykvíkingur kaupir notaða bifreið af einhverjum öðrum Reykvíkingi með R-númeri, þá er engin ástæða til þess að umskráning verði gerð nema báðir þessir aðilar, sem versla milli sín um bifreið, séu áfram um það og þá kostar þetta, eins og ég sagði, um 4500 kr. Það er dýrt fyrir að færa plötuna á milli og skrá í bækur, tölvukerfið. Það er vel borgað fyrir. Á hinn bóginn verður ekki hjá því komist eftir núverandi kerfi að umskrá bifreið sem flutt er á milli umdæma sem ég hygg að kosti eitthvað um 2000 kr. Ég hygg að það sé nú þannig að það séu ærið margir sem vilji kosta því til til þess að halda þeirri umdæmaskiptingu sem nú er í númerakerfinu. Það er a.m.k. mín meining.
Ég vil taka það fram að andstaða okkar sem höfum á undangengnum árum verið andvígir því að taka upp svokallað fastnúmerakerfi hefur eiginlega verið færð yfir í aðhlátursefni og að henni gert gys og reynt að gera hana að hégómamáli á þeim grundvelli að þeir sem séu andvígir þessari breytingu eigi einhver uppáhaldsnúmer sem þeir vilji ekki missa. Ég tel að þetta sé vitaskuld alrangt. En við viljum ekki láta þá umdæmaskiptingu sem nú er í skráningarkerfinu. Til þess liggja góðar og gildar orsakir sem ég get hér talið fram.
Í fyrsta lagi er kostur í umferðinni að sjá hvaðan bíll er sem maður mætir. Þetta er ekki síst kostur þegar komið er út fyrir aðalvegina. Ef komið er út á þrönga vegi eins og tíðast er um þjóðbrautir okkar þá vitum við landsbyggðarmenn að það er betra að vara sig, hægja á sér, helst stoppa ef við mætum bíl með númeri héðan úr aðalþéttbýlinu. Þetta er ekkert einkennilegt. Ef við mætum bíl með R-númeri eða Y- eða G-númeri þá er betra að fara varlega. Hvers vegna? Vegna þess að mjög margir, raunar langflestir ökumenn á þessu svæði, sem aka bílum með þessum skráningarnúmerum, eru allsendis óvanir vegum eins og tíðast er um þjóðbrautirnar: mjóum vegum, hlykkjóttum vegum sem oft getur verið erfitt að mætast á. Í þessu felst ekkert last um það fólk sem býr hér á höfuðborgarsvæðinu, það er bara ekki vant að aka við þessar aðstæður og það veigrar sér við að víkja með sama hætti og þeir gera sem þessum aðstæðum eru vanir. Á sama hátt verðum við vitaskuld varir við það, utanbæjarmenn hér í Reykjavík sem ökum á bifreiðum með utanbæjarnúmerum, að Reykvíkingar eða þeir sem hér eru vanastir umferðinni hafa iðulega á sér nokkurn vara og varúð þegar þeir mæta bílum með utanbæjarnúmeri. Ég er ekkert hissa á því því ýmsir þeir sem koma sjaldan hingað og kannski aka sjaldan hér í umferðinni eru ekki svo öruggir sem skyldi. Þetta vita Reykvíkingar og þetta vita þeir sem eru hér á höfuðþéttbýlissvæðinu og taka því þess vegna slíkum mönnum með nokkurri varúð. Þetta er einn af þeim kostum sem fylgja því að halda því kerfi sem er og ekkert lítils verður.
Annar kostur er sá að með því að halda við núverandi kerfi þá má auðveldlega rekja ökuferilsskýrslu flestra ökumanna sem í gegnum tíðina hafa ekið á sama númeri á mörgum bifreiðum. Það er mikils virði að geta rakið slíka ökuferilsskýrslu ekkert síður en að rekja akstursferil bílsins, ökutækisins - það er miklu minna virði - sem getur verið í höndum margra eigenda, margra ökumanna.
Það er eins og það sé að verða árátta í þessu þjóðfélagi að má út allt það sem kennt er við héruð í landinu. Mér þótti of langt gengið í þeim efnum t.d. við setningu sveitarstjórnarlaga. Ég hefði viljað halda þar vissu lögformlegu samstarfi sveitarfélaga á héraðagrundvelli. Það er vissulega annað mál. En í fleiri og fleiri atriðum eru að koma fram frv. til laga, hugmyndir sem verða til innan stjórnkerfisins hjá embættismannakerfinu, hugmyndir, sem síðan eru bornar fram af hæstv. ráðherrum, sem fela það í sér að þurrka út allt er minnir á héruðin í landinu. Þetta mál er eitt þeirra og ég held að það sé ástæða til fyrir okkur landsbyggðarmenn að snúast til varnar fyrir héruðin í landinu. Það sýnist kannski ekki í stóru hér í þessu frv. en þetta er þó eitt dæmið sem minnir á hvert verið er að stefna í þessum efnum.
Ég held að við getum búið við það kerfi sem við höfum á skráningu ökutækja enn um sinn. Ég tel það hreina vitleysu að halda úti tvöföldu skráningarkerfi, óþarfa kostnað og fyrir svo utan fordæmanlega framkvæmd mála þvert ofan í ákvarðanir Alþingis. Og ég tel þær hugmyndir, sem flögrað hefur verið með í sambandi við þá breytingu sem hér er verið að fara fram á að sé lögfest, um að til að mynda þeir sem nú aka á einhverju númeri geti ekið á því líftíma bílsins eða líftíma ökumanns, auðvitað ekkert nema vitleysu. Það er auðvitað bara forkastanleg vitleysa í máli eins og þessu að ætla sér að halda úti tvöföldu eða margföldu kerfi. Það er forkastanleg vitleysa.
Ég mun því beina því til hæstv. ráðherra, sem hér hlýðir á þetta mál, í fyrsta lagi að gefa hv. Alþingi skýrslu um hvenær tekið var upp á því háttalagi, sem ég hef nefnt svo, að taka upp skráningarkerfi sem Alþingi hefur hvað eftir annað hafnað til viðbótar við hið núverandi og löglega skráningarkerfi sem er í gildi.
Í öðru lagi að óska eftir því að ef svo færi að Alþingi ákvæði að gefa heimild til stofnunar hlutafélags um rekstur þeirrar starfsemi sem nú er á höndum Bifreiðaeftirlits ríkisins, hvernig þá verði við komið almennri og sómasamlegri þjónustu við bifreiðaeigendur í landinu og hvaða breytingar sé hugsað að gera á því kerfi. Er það einungis þetta, sem hér kemur fram, að það skuli vera þrjár skoðunarstöðvar á landsbyggðinni og ein í Reykjavík til viðbótar nokkrum þáttum þessara mála sem fram eiga að fara á þar til völdum verkstæðum? Eða hvernig á þessi þjónusta að fara fram?
Í þriðja lagi óska ég eftir því við hæstv. ráðherra með tilliti til þess að frv. þetta var ekki eitt af forgangsmálum núv. hæstv. ríkisstjórnar nú fyrir þinglok og með tilliti til þess að hv. Alþingi hafnaði fyrir einu ári síðan því fastnúmerakerfi sem hæstv. ráðherra virðist nú vilja koma á, þá fer ég fram á það að hann dragi þetta frv. til baka og að það verði tekið til athugunar til næsta þings. Mér sýnist ekki vanþörf á.
Ég held að það sé ekki ástæða til fyrir mig að þessu sinni fyrr en þessu hefur verið svarað að lengja mál mitt, en það er auðvitað ljóst af mínu máli að ég er enginn stuðningsmaður þessa máls. Og það er jafnljóst af mínu máli að ég er algerlega andvígur því að fara að grauta í þessu skráningarkerfi. Ég er andvígur því að hv. Alþingi, sem hefur hafnað því tvívegis a.m.k. síðast fyrir einu ári síðan, fari að leggja blessun sína á það forkastanlega háttalag framkvæmdarvaldsins að láta ákvarðanir Alþingis sem vind um eyru þjóta og taka upp í skráningarvottorð bifreiða skráningarkerfi sem Alþingi hefur hafnað.
Herra forseti. Ég mun ekki að sinni hafa þessi orð fleiri.