09.05.1988
Neðri deild: 98. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7821 í B-deild Alþingistíðinda. (5962)
360. mál, umferðarlög
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég hef ekki tekið til máls í þessu máli fyrr og var ekki viðstaddur þegar 1. umr. málsins fór fram og vil þess vegna láta mitt álit í ljós hér við 2. umr.
Það rifjaðist upp fyrir mér að á sl. hausti, áður en Alþingi kom saman, þá kynnti hæstv. dómsmrh. þetta mál, skýrslur sem unnar höfðu verið á vegum ráðuneytisins um Bifreiðaeftirlit ríkisins, á fundi í fjvn. Þar voru gefnar ýmsar upplýsingar um hugsanlegar breytingar á þessu kerfi og ýmsar skýringar á því hvað um væri að ræða, en það var enginn rökstuðningur í sambandi við þetta sem að mínu mati var bitastætt í varðandi þær breytingar sem hugsað var að gera. Það voru einungis hugmyndir og þær hugmyndir, eins og þær raunar birtast hér í þessu frv., eru meira og minna í lausu lofti.
Á þeim árum sem ég hef setið hér á hv. Alþingi hafa mál Bifreiðaeftirlits ríkisins oftar en einu sinni komið upp á borð þm. og ekki síst þeirra sem hafa starfað í fjvn. Og ég get sagt það sem mína skoðun að þessi ágæta stofnun Bifreiðaeftirlitið hefur alltaf verið hálfgert olnbogabarn í kerfinu. Hún hefur verið illa búin að tækjum hún hefur verið á eftir með að nýta sér ýmsar nýjungar, ekki síst tækninýjungar, svo maður minnist nú ekki á það ófremdarástand sem hefur á liðnum árum verið í því aðstöðuleysi sem þessi stofnun hefur búið við eða starfsfólk hennar til að sinna sínum verkefnum. Þetta hefur m.a. orðið til þess að menn hafa alltaf verið að tala um að þetta kerfi væri ómögulegt og það hefur verið meira og minna afgreitt á þann einfalda hátt að því þyrfti bara að breyta.
Nú er ég ekki að halda því fram að þessi þáttur í opinberri þjónustu þurfi ekki að breytast í takt við þær breytingar sem gerast með aukinni tækni og ýmsu sem hefur komið upp í hendurnar á okkar þjóðfélagi eins og hjá öðrum þjóðum. Það er alls ekki skoðun mín að það þurfi ekki breytinga við. En þetta mál, sem hér er til umræðu, finnst mér bera að með dálítið einkennilegum hætti og ég hefði talið að það þyrfti að kynna og skoða þetta mál miklu, miklu betur. Ríkið hefur aldrei tapað á þessu kerfi. Það hefur alltaf verið séð svo um að þeir sem eiga bifreiðar hér á landi hafa borgað sitt og rúmlega það þannig að það hefur ekkert þurft að gefa með þessari stofnun. Ég held að það sé nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því áður en lengra er haldið.
Ég held að það hefði verið miklu skynsamlegra hjá hæstv. dómsmrh. að láta meiri tíma í að kynna þetta mál. Mér finnst uppsetning á málinu og þau rök sem fylgja því að gera þessa breytingu hafa tekið á sig hálffurðulega mynd. Ég get alveg tekið undir það með hv. 2. þm. Norðurl. v. og raunar einnig hv. 2. þm. Vesturl. að margt af því sem hér hefur verið sagt, og kannski ekki síður það sem hefur verið sagt í fjölmiðlum um þessa væntanlegu kerfisbreytingu, það nær ekki nokkurri átt, slíkar öfgar hafa verið fram settar.
Ég hef orðið að hlusta á það víðs vegar að það væri verið spara með þessu kerfi - ekki 100 millj. heldur 350 millj. Það eru síðustu tölur sem maður hefur séð. Og þegar spurt hefur verið: Hvað spara þá bifreiðaeigendurnir sjálfir? Lækka gjöldin á okkur sem eigum bifreiðarnar? Er þessi nýja skipan á málinu til þess að lækka gjöldin á bifreiðum í landinu? Ég er ansi hræddur um að það verði akkúrat þveröfugt. Og mér finnst það alveg furðulegt. Ég tók ekki eftir þessu fyrr en ég fékk þetta skjal sl. föstudag til að fara að lesa það aftur þegar sýnt var að það var um það leyti að komast í gegnum Ed., þá rak ég mig á það sem hv. 2. þm. Norðurl. v. var að segja hér áðan að stofnunin eða ráðuneytið í þessu tilfelli skuli leyfa sér það sem stendur hér skýrum stöfum á bls. 5 í fskj. með þessu frv. að það er búið að nota þetta nýja kerfi, sem ekki er búið að lögfesta, í lengri tíma. Það er búið að setja upp og kosta til — ja, hvað miklum fjármunum, það vitum við ekki - til þess að byggja upp kerfi sem Alþingi er ekki búið að samþykkja og hefur raunar hafnað, eins og hv. 2. þm. Norðurl. v. tók réttilega fram, oftar en einu sinni. Mér finnst þetta vera alveg furðuleg vinnubrögð og ég verð að segja það að maður hefði látið segja sér þetta tvisvar ef maður hefði ekki getað lesið þetta hér á þessu opinbera plaggi. Það væri raunverulega fróðlegt að fá það hér fram hvort menn virkilega hugsa sér það í stjórnkerfinu að það sé hægt að byggja upp nýjar aðferðir og nýjar aðgerðir í ýmsum opinberum málum með því að byrja að framkvæma það áður en búið er að fá fyrir því samþykki. Það er áreiðanlega nýjung ef það á að hugsa sér að slíkt geti átt sér stað.
Ég segi það alveg eins og er að ég get ekki skilið hvernig í ósköpunum því er haldið fram að það sé eitthvert sáluhjálparatriði og stórkostlegt fjárhagslegt atriði fyrir íslenska ríkið að byggja upp nýtt skráningarkerfi í landi þar sem eru ekki til nema rúmlega 100 þús. bifreiðar, geta kannski orðið 120–130 þús. bifreiðar. Mér finnst ákaflega veik rök að það sé ekki hægt að útbúa hér, með tölvutækninni sem hér er komin inn, form til umskráningar á bifreiðum sem ætti ekki að setja allt á rönd miðað við það kerfi sem við höfum verið með. Ég get ekki séð það.
Það sem er kannski erfiðast í þessu í mínum huga er sú þjónusta sem þessi nýja útfærsla ætti að leysa. Hún sannfærir mig ekki nema síður sé með sömu rökum og hv. þm., bæði 2. þm. Norðurl. v. og 2. þm. Vesturl., komu með hér. Við fáum ekki þessa þjónustu sem við höfum út úr þessu nýja kerfi sem hér er verið að setja upp. Og það er dálítið fróðlegt ef við lítum á dæmið hér, sem sett er upp í þessu skjali í sambandi við það sem á að byggja upp í gegnum - ja, hvað eigum við að kalla hana - Skoðunarstöðina hf. eða Skráningarstöðina hf., Bifreiðaskoðun Íslands hf. Það er talað um að þessi aðstaða muni hér í Reykjavík kosta 75 millj. kr. svo sem getið er á fskj. 5. Ég hlustaði á skýringar þessa ágæta verkfræðings sem kom á fund fjvn. á sl. ári og útskýrði þetta nokkuð.
Sjálfsagt getur vel verið að það sé hægt að byggja þessa stöð, eins og hún er sett upp, á verðlagi í dag á 100 millj. kr. og við skulum segja að það sé í lagi. En halda menn virkilega að það nægi fyrir þessa þjónustu að fá þrjár eða fjórar skoðunarstöðvar út um land? Láta menn sér virkilega detta þetta í hug? Ég tek fyllilega undir þau rök sem hv. 2. þm. Norðurl. v. lagði hér fram. Auðvitað á þessi þjónusta að færast til fólksins en ekki frá fólkinu. Og jafnvel þó að það lægi hér fyrir að stjórnvöld hygðust koma upp einni slíkri stöð í hverju kjördæmi, sem kostaði þá 8x15 millj. kr. ef miðað er við þessa útfærslu, sem er nú vægast sagt ekki nákvæmt, er ég ansi hræddur um að það dragi einhvers staðar úr þjónustu miðað við það sem við höfum þó í dag þar sem þessi bifreiðaskoðun fer nú fram í öllum þéttbýlisstöðum landsins. Við skulum hugsa okkur það að það væri nauðsynlegt fyrir okkur að reyna að styrkja byggðirnar með því a.m.k. að það væri á flestum þéttbýlisstöðum og jafnvel víðar aðstaða fyrir bifreiðaþjónustu, þ.e. bifreiðaverkstæði, sem ganga nú ekki of vel úti um landið eins og er, og þau fengju þetta hlutverk. Ef þau misstu af þessu og fengju ekki að sjá um þessa þætti yrðu bifreiðaeigendur að fara landið á enda til þess að fá skoðun á bílum sínum. Ég get ekki séð hverju þetta þjónar. Það væri miklu eðlilegra að hafa bifreiðaeftirlitið í þeirri mynd, finnst mér, að gera samninga við slík verkstæði þannig að þau gætu sett upp fullkominn búnað hjá sér og síðan væri ábyrgðin hjá þeim hvort bifreiðarnar okkar væru í lagi og stæðust þá skoðun eða þá umfjöllun sem þessir aðilar gerðu á eðlilegum tímum til þess að fullnægja því öryggi sem allir eru sammála um. Ég er þess vegna algjörlega andvígur þessari hugmynd. Það má vel vera að menn sjái einhverja nýja lausn í því að mynda Bifreiðaeftirlit hf. með ýmsum aðilum og þá vil ég taka undir það, ekki síður, sem hv. 2. þm. Norðurl. v. sagði hér í sambandi við tryggingafélögin. Halda menn virkilega að það sé eitthvert fjárhagslegt öryggi fyrir bifreiðaeigendur í landinu ef tryggingafélögin eiga líka, ofan á það frelsi eða þá einokun sem þau raunverulega hafa í sambandi við ákvörðun á bifreiðatryggingum í landinu, að vera beinn aðili að skoðunarkerfinu í landinu? Þau hafa núna það öryggi fyrir sinn rekstur að það er ekki hægt að skoða bíl nema búið sé að borga tryggingagjaldið. Maður hefði haldið að það væri kannski fullnægjandi að flestu leyti. En ég segi það alveg eins og er, og tek undir það sem hér hefur komið fram, að ég tel að það sé ekki trúverðug staða fyrir bifreiðaeigendur í landinu ef þessir aðilar eiga að sjá um alla þætti þessara mála og bifreiðaeigendur eru sjálfir algjörlega varnarlausir. Það er mín skoðun.
Herra forseti. Það var nú ekki meining mín að fara í miklar umræður um þetta mál. Ég endurtek það sem ég sagði hér í upphafi: Ég reiknaði ekki með að frv. yrði afgreitt á þessu þingi. Ég hélt að menn mundu fá að skoða þetta miklu nánar og ræða það frekar miðað við þessa dreifingu á þjónustu, a.m.k. hefur enginn talað gegn því hér á hv. Alþingi að dreifa þjónustunni um landið og tengja þetta mál miklu frekar til þess að reyna að byggja upp örugga þjónustu víðs vegar um landið gegnum þau bifreiðaverkstæði sem eru til og þetta væri liður í því.
Ég er alveg sannfærður um að þetta nýja kerfi, ef það fengi framgang hér á hv. Alþingi, verður til þess að stórhækka gjöld á bifreiðaeign landsmanna. Ég er alveg sannfærður um það. Ég er einnig sannfærður um það að ef þetta kerfi verður samþykkt hér á hv. Alþingi virkar það akkúrat öfugt. Þjónustan er færð frá fólkinu og fólkið sem á bifreiðar í vaxandi mæli verður að hafa miklu, miklu meira fyrir því að eiga þessar bifreiðar en nú. Þess vegna virkar þetta kerfi öfugt á mínar skoðanir í sambandi við þessi mál.
Ég þarf ekki að lýsa því að ég er andvígur þessu frv., ekki að því leyti til að ég vilji ekki efla bifreiðaeftirlitið og gera það öruggara og nútímalegra en það er, en í þessu formi get ég ekki samþykkt það, alls ekki, og mun beita mér gegn því að svo verði gert. Ég tek undir þau tilmæli sem hv. 2. þm. Norðurl. v. beindi til hæstv. dómsmrh. um að það væri langeðlilegast, núna þegar kannski einn eða tveir sólarhringar eru eftir til þingslita, að frv. verði dregið til baka og fái enn þá meiri meðferð milli þinga. Síðan gætum við rætt það í haust hvaða kerfi við mundum vilja taka upp í sambandi við þetta mál.