09.05.1988
Neðri deild: 98. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7840 í B-deild Alþingistíðinda. (5968)

360. mál, umferðarlög

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Ég get nú ekki tekið undir með hv. 5. þm. Reykv. að í frv., sem hér um ræðir, sé fólginn sparnaður, alls ekki fyrir ríkið og allra síst fyrir bifreiðaeigendur í landinu. Og þó að hæstv. ráðherra hafi sagt hér sögu um Gunnu og Siggu og fleiri slíkar um skiptingu á númerum er ekki alveg víst að það sé aðalatriðið í þessu máli þegar betur er skoðað ofan í kjölinn.

En það sem kom mér fyrst og fremst til að koma hér upp var orð sem hæstv. ráðherra lét falla í sambandi við fjvn. Eins og ég tók fram í mínu tali hér fyrr, þá sagði ég frá því að áður en þing kom saman og á fyrstu dögum þess sem núverandi fjvn. fór að vinna að fjárlögum kom hæstv. ráðherra með sína menn til að kynna okkur hugmyndir sem uppi voru. Hæstv. ráðherra, sem var í einu af sínum fyrstu ráðherraverkum, kynnti þetta mál í fjvn. og ekki var hægt að draga þá ályktun að fjvn. hefði lagt blessun sína yfir þetta mál eða þessar hugmyndir, síður en svo.

Hitt get ég sagt að við sem höfum starfað á undanförnum árum í fjvn. höfum fylgst mjög náið með því hvernig þessi mál hafa verið að þróast hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins og við höfum haft af því vissar áhyggjur. Við höfum reynt eftir megni að stuðla að því með ýmsum athugunum sem gerðar hafa verið að koma þessum málum til betri vegar og það hefur tekist, þrátt fyrir að aldrei hafi verið unnið til þess, sem nauðsynlegt var, að sú starfsemi, sem þarna fer fram, skapaði starfsfólki og viðskiptavinum þá aðstöðu sem eru lágmarkskröfur í nútímaþjóðfélagi, ekki síst þegar um er að ræða þennan þátt mála, skoðun á bifreiðum. Þess vegna hlýtur framvinda þessa máls að verða sú að áfram sé reynt að vinna að því að fullkomna þá aðstöðu sem þessi nauðsynlega þjónustugrein, sem er mikil öryggisþjónusta í landinu, þarf að búa við. En það verður ekki gert með því að breyta þessu í hlutafélag og láta þá aðila, sem þarna er talað um, vera „prímusmótora“ í þessu máli. Ég hef enga trú á að það geti leitt til góðs og endurtek hér með það sem ég sagði fyrr.

Mér finnst furðulegt að halda því fram að það sé ekki eðlilegra að færa þessa þjónustu nær fólkinu heldur en gert er ráð fyrir í frv. Og ég hef trú á því að bifreiðaverkstæði og þeir sem hafa réttindi til þess að annast slík mál og eru staðsettir víðs vegar um landið gætu tekið meiri þátt í þessu heldur en gert er ráð fyrir. Það eru víða til góð bifreiðaverkstæði og góð aðstaða og kannski vantar aðeins herslumuninn til þess að þessir aðilar fái þau tæki sem þarf til þess að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru. Ég vara mjög við því að láta sér detta í hug í alvöru að hægt sé að annast þessa þjónustu fyrir bifreiðaeigendur um allt Ísland eingöngu með þremur eða fjórum stöðvum um landið. Það er allt of mikil bjartsýni að halda að slíkt geti átt sér stað. Það mundi aldrei verða þolað í landinu, það er ég alveg handviss um.

Það er að mínu mati ljóður á frv. hvað margir lausir endar eru hvað þetta varðar. Því er slegið upp að það eigi að stofna slíkt hlutafélag, því er slegið upp að það kosti svo og svo mikið að setja upp slíkar skoðunarstöðvar en það er ekki útfært miðað við staðsetningar eða miðað við þörf og hugsanlegar kröfur sem til slíkrar þjónustu verður að gera. Ég vil aðeins rifja upp það nál. sem hér liggur frammi frá allshn. Þar koma raunverulega fram þau atriði sem við, nokkrir þm., höfum verið að vara við hér, ekki síst hvað varðar skoðun eða þjónustu. Þar segir nefndin alveg umbúðalaust að hún leggi sérstaka áherslu á að þjónusta við bifreiðaeigendur verði bætt, verði aukin enn, og að tryggja verði að bílaeigendur í dreifbýli eigi kost á skoðun bifreiða sem næst sinni heimabyggð og nýttar verði heimildir til samninga við bifreiðaverkstæði til að annast þá þjónustu. Nefndin er sem sagt sammála því sem við erum að segja hér, þessir þm. sem hafa verið að tala um þessi mál. (Dómsmrh.: Er það partur af málinu?) Það er partur af málinu, það er kannski aðalatriði málsins en það er ekki það sem frv. ber með sér eins og það er lagt fram, alls ekki. Hæstv. ráðherra sagði hér í upphafi að það gæti ekki verið aðalatriðið að þessi þjónusta væri hjá fólkinu heldur að hún væri fullkomin þar sem hún væri staðsett. Ég get ekki fallist á þá skoðun að einu eða neinu leyti.

Herra forseti. Það er ástæðulaust að vera að rökræða meira um þetta mál. Ég tek undir það sem hér hefur komið fram að það vantar ýmislegt í þetta og sannarlega hefði verið meiri ástæða til þess að kynna málið meira og ræða þetta nánar miðað við þær aðstæður sem við búum við hér á landi. Og ég segi það alveg eins og er og get tekið undir það með hv. 5. þm. Reykv. að ég get ekki hugsað mér þetta form sem hér er sett upp með hlutafélag og þá aðila sem eiga að bera það uppi miðað við þá reynslu sem við höfum þegar í landinu af þeirra starfsemi. En ég endurtek það sem ég sagði hér í upphafi að ég reikna með því að það hljóti að teljast eðlileg krafa frá okkur stjórnarþingmönnum, allmörgum, í þessari hv. deild að skoðað verði ofan í kjölinn hvort ekki er eðlilegt að fresta þessu máli þannig að við getum fengið tíma til næsta hausts til þess að skoða málið nánar.