09.05.1988
Neðri deild: 99. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7852 í B-deild Alþingistíðinda. (5983)

454. mál, viðskiptabankar

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. 4. þm. Norðurl. e. og hv. 1. þm. Norðurl. v. fyrir undirtektir þeirra undir hugmynd mína um meðferð málsins sem var sú, eins og fram kom í minni ræðu hér áðan, að hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar freistaði þess að ná víðtækri samstöðu um efnisatriði 2.–5. gr. en slægi efnisatriði 1. gr. á frest þar til þingið væntanlega í haust fjallar um frv. sem fram hefur komið á þinginu til kynningar um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri á Íslandi, sem hæstv. forsrh. lagði hér fram fyrir nokkru. Þetta vona ég að hjálpi líka til að skýra hvers vegna svo lítt var rætt hér um 1. gr. áðan og þar kem ég að máli hv. 5. þm. Reykv.

Það er einmitt svo að í frv. um erlenda fjárfestingu er almennt ákvæði um yfirfæranleik arðs af því fé sem erlendir aðilar kynnu að festa hér í atvinnurekstri. Þar er ákveðið er að þeir eigi rétt á að fá yfirfærðan í hverjum þeim erlendum gjaldmiðil sem Seðlabankinn annast á reglulega skráningu, móttekinn arð og annan hagnaðarhlut og söluandvirði fjárfestingar. Um slíka gjaldeyrisyfirfærslu skal þá fara samkvæmt gildandi lögum og reglum um framkvæmd gjaldeyrismála á hverjum tíma. Það er einmitt umræðan um þetta almenna frv. sem yrði vettvangurinn fyrir skoðanaskipti og vafalaust ágreining um það hversu ráðlegt það telst að heimila erlendum aðilum að eiga hér hlut í íslenskum hlutafjárbönkum. Þetta vona ég að skýri það fyrir hv. 5. þm. Reykv. og öðrum þingdeildarmönnum sem á þetta mál hlýða hvers vegna ég legg nú til að við freistum þess að stytta umræður a.m.k. um 1. gr. frv.

Ég leyfi mér líka að skilja orð hv. 5. þm. Reykv. á þá lund að hann sé efnislega samþykkur þörfinni fyrir þau nýju ákvæði sem finna má í 2.-5. gr. Ég tek það alveg skýrt fram að í 2. gr. er alls ekki um það að ræða að bankastjórn setji reglur. Þvert á móti er megintilgangur þeirrar greinar að gera það alveg skýrt að það er bankaráðið sem setur reglur um hámark lána og ábyrgða og trygginga til eins aðila og það fær eingöngu umsögn bankastjórnarinnar og það er ábyrgðarhluti bankaráðsins að sjá til þess að þessum reglum sé framfylgt þótt það fjalli ekki um einstakar lánveitingar. Þetta tel ég afar mikilvægt og reyndar í samræmi við það sem algengast er í þeim löndum sem við berum okkur oftast saman við í bankaviðskiptum og eigum mest bankaviðskipti við. Ég tek það líka fram að ákvæði 2. gr. og annarra greina en 1. gr., þ.e. 2.–5., er samið í samstarfi við bankaeftirlitið og þeir hafa lagt þar hönd á plóg.

Ég fagna því sem fram kom hjá hv. 5. þm. Reykv. um 3. og 4. gr. sem ég taldi mig heyra rétt að hann segði að væru eðlileg ákvæði í bankalögum. Um 5. gr. og um stöðu einstakra banka gagnvart henni þá tek ég það fram að 5. gr. er flutt að ósk og beiðni bankaeftirlitsins, sem hefur talið nauðsynlegt að hafa svona viðmiðun fram til ársins 1990 þegar allir bankar eiga að hafa náð þessu marki, svo mönnum eða bönkum sé ekki frjálst að hoppa upp í þessu í millitíðinni.

Og ég tek undir þau orð hv. 5. þm. Reykv. að það er ekki burðug bankastofnun sem er með stærri hlut en 65% af sínu eigin fé bundinn í húsum og útbúnaði. Þetta er alveg rétt athugað og það er einmitt tilgangur þessa frv. að sjá til þess að aðlögun að þessari staðreynd og þessu mati á burðum bankastofnana verði skipuleg. Því miður er það svo að nokkrar stofnanir í íslenska bankakerfinu voru yfir þessum mörkum í lok sl. árs.

Ég tel ekki þörf á, hæstv. forseti, að hafa um þetta fleiri orð, en þakka þingdeildarmönnum undirtektirnar við 2.–5. gr. frv. og legg til að 1. gr. verði skotið á frest þar til fjallað verður á þinginu um frv. forsrh. um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri á Íslandi.