10.05.1988
Neðri deild: 101. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7912 í B-deild Alþingistíðinda. (6035)
431. mál, virðisaukaskattur
Óli Þ. Guðbjartsson:
Hæstv. forseti. Þessar umræður um virðisaukaskatt hafa nú staðið lengi dags og sjálfsagt eru flest atriði fram komin sem hér skipta máli. Það er ekki ætlun mín að fara að verulegu leyti frekar út í þær efnisumræður sem hér hafa farið fram. En það er eitt atriði sem mig langar til að spyrja hæstv. fjmrh. að svona undir lokin.
Það kemur fram í nál. meiri hl. fjh.- og viðskn. um virðisaukaskattinn að til nefndarinnar hafi komið 47 aðilar með ýmiss konar erindi. Síðan segir, með leyfi hæstv. forseta, í þessu nál. (SJS: Hvað á ræðumaður við með „aðilar“? Getur hann talað skýrar.)
„Við athugun nefndarinnar á frv. komu fram ýmsar tillögur og hugmyndir um breytingar. Taldi nefndin einsýnt að mörg atriði þörfnuðust nánari athugunar. Meiri hl. nefndarinnar taldi ekki ráðrúm við núverandi aðstæður að flytja brtt. við frv., enda þegar ákveðið að nefnd verði skipuð til þess að taka frv. til sérstakrar athugunar og móta tillögur um lagabreytingar eftir því sem þurfa þykir.“ - Og veiti menn því athygli að hér er um að ræða framhaldsvinnu um þetta mál sem hér er raunar búið að vera á dagskrá meira og minna í almennri umræðu frá því að ríkisstjórnin hæstv. var sett á laggirnar.
Nú sagði hæstv. fjmrh. hér áðan að þessi vinnubrögð væru mjög eðlileg. Þau væru nánast sjálfsögð þegar um svo viðamikið mál væri að ræða. Út af fyrir sig getur það verið rétt. Og hann bætti því við að sams konar vinnubrögð hefðu verið höfð þegar staðgreiðslukerfi skatta var sett hér á fyrir rösku ári, eða raunar undirbúningurinn var á sl. ári. Sams konar vinnubrögð hefðu verið á höfð. Og hann bætti enn fremur við: „Þau vinnubrögð reyndust góð. Þau skiluðu góðum árangri.“ En nú vil ég spyrja hæstv. fjmrh.: Hvers vegna beitir hann nú hins vegar öðrum vinnubrögðum? Sá munur er á að á sl. ári starfaði milliþinganefnd sem var skipuð fulltrúum frá öllum pólitískum aðilum hér í þinginu. Og hæstv. fjmrh. segir: Árangurinn var góður. Nú á að hafa svipuð vinnubrögð. En þá er ekki um það að ræða að stjórnarandstaðan fái nokkurn fulltrúa í þá vinnu, alls engan. Það er eingöngu stjórnarliðið og embættismenn. Engu að síður sagði fjmrh.: Niðurstaða vinnunnar í fyrra var góð. Það var sæmilegur friður um framkvæmdina. Nú spyr ég: Ætlast hæstv. fjmrh. ekki til svipaðrar niðurstöðu? Og hvers vegna leggur hann til í ríkisstjórn að stjórnarandstaðan fái ekki hlutdeild þar að?