10.05.1988
Neðri deild: 102. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7919 í B-deild Alþingistíðinda. (6058)
466. mál, ferðamál
Guðrún Helgadóttir:
Hæstv. forseti. Varðandi það frv. til laga sem hér liggur fyrir á þskj. 816, sem er 466. mál þingsins, vil ég segja það að ég hef ekki enn þá fengið nein haldbær rök fyrir því að ástæða sé til þess að selja Ferðaskrifstofu ríkisins. Vel má hins vegar vera að þau rök finnist.
En til þess kom ég hér í ræðustól að vekja athygli á vægast sagt undarlegum vinnubrögðum. Í nál. frá Ed. segir varðandi það ákvæði að starfsfólk Ferðaskrifstofu ríkisins eigi að hafa forkaupsrétt þegar Ferðaskrifstofan verður seld, í 2. lið, með leyfi forseta: „Með orðalagi 3. mgr. 1. gr. frv. um „forkaupsrétt starfsmanna“ er að áliti nefndarinnar átt við alla starfsmenn, jafnt fastráðna sem lausráðna, svo sem sumarráðna starfsmenn Edduhótela.“ Gott og vel. Síðan kemur nál. frá Nd., frá hv. samgn. Nd., og þar segir svo, með leyfi forseta: „Með orðalagi 3. málsgr. 1. gr. frv. um „forkaupsrétt starfsmanna“ er að áliti nefndarinnar átt við fastráðna starfsmenn fyrirtækisins svo og hótelstjóra Edduhótelanna.“
Nú spyr ég: Hvað á þetta að þýða? Í fyrsta lagi virðist vera orðinn siður hér á þessum síðustu dögum þingsins að gera nál. að einhverjum meiri háttar gögnum um framkvæmd laga. Fyrir mér er það algjörlega nýtt. Hingað til hafa grg. með frv. haft veruleg áhrif um túlkun laga en nál. satt að segja ekki mikil. Nægir að minna á umræðu sem fór hér fram um Ríkisendurskoðun fyrir örfáum dögum eða jafnvel klukkutímum. En ef menn vilja nú allt í einu leggja þessa gífurlegu áherslu á nál. er alveg lágmarkað þau séu samhljóða. Ég hlýt því að spyrja hæstv. samgrh.: Hvort ber að taka hv. samgn. Ed. alvarlega eða hv. samgn. Nd.? Greinilegt er að þessar hv. nefndir eru gjörsamlega ósammála um hverjir eigi að hafa forkaupsrétt. Og hverjum meðalgreindum hv. alþm. (SkA: Og þar yfir.) og þar yfir, eins og þjóðkunnur hv. félagi okkar sagði hér eitt sinn í ræðustól, hlýtur að vera það nokkurt undrunarefni hvers konar vinnubrögð þetta eiginlega séu. Las ekki hv. samgn. Nd. nál. hv. samgn. Ed.? Hefur hæstv. samgrh. alls ekki lesið nein nál.? Ég hygg að hann hefði hlotið að hnjóta um þetta. Og þess vegna hlýt ég að spyrja: Hvers konar vinnubrögð eru þetta og fyrir hvern er þetta og hver á að botna í þessari vitleysu?
Ég held að ég hljóti að verða að gera þá tillögu til virðulegs forseta að þessar góðu hv. nefndir komi saman að nýju og komi sér saman um hverja þær telji eiga forkaupsrétt á Ferðaskrifstofu ríkisins. Skemmtilegt væri nú að það fylgdi þá frá þeim fundi hvers vegna eitt af þeim fáu ríkisfyrirtækjum sem skilað hafa arði í gegnum árin á nú endilega að koma á sölulista. Þau rök vantar mig enn í allt þetta mál og tel það hið mesta óráð að selja Ferðaskrifstofu ríkisins. En ég vil ekki taka tíma þingsins til að hefja þá umræðu hér og nú. En ég bendi bara á að Ferðaskrifstofa ríkisins hefur verið heldur vel rekið fyrirtæki um langan tíma. Hún hefur stuðlað að varkárni í umgengni um landið, lagt áherslu á umhverfismál. Hún hefur verið hvati að nýrri búgrein ef svo má segja, sem er Ferðaþjónusta bænda, og ýmislegt fleira mætti telja Ferðaskrifstofu ríkisins til ágætis og þeim ágætu starfsmönnum sem þar hafa unnið. En ég tel nú satt að segja ekki vettvang lengur til að vera að ræða það hér á kvöldfundi. Ég hlýt hins vegar að vekja athygli á þessum undarlegu nál. og fara þess á leit við hæstv. ráðherra og hæstv. forseta að nefndir þingsins komi sér saman um hvað þær eru eiginlega að hugsa.