10.05.1988
Neðri deild: 102. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7923 í B-deild Alþingistíðinda. (6061)
466. mál, ferðamál
Samgönguráðherra (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls gerði ég grein fyrir forsendum frv. Ég vék m.a. að þróun þessara mála á undanförnum árum og benti á hver breyting væri orðin á frá því að lögin um Ferðaskrifstofu ríkisins eru fyrst samþykkt og til þess dags sem er í dag. Ég benti m.a. á að það hlutverk sem Ferðaskrifstofa ríkisins þá hafði og henni var ætlað hefur með breyttum lögum verið falið ferðamálastjóra, skrifstofu hans. Á sl. ári var stofnuð upplýsingamiðstöð ferðamála þannig að í dag er Ferðaskrifstofa ríkisins orðin fyrirtæki sem eingöngu sinnir ferðamálum og að sumu leyti hafa verið gagnrýnd þau sérréttindi sem þar hafa verið og því talið eðlilegt að þetta fyrirtæki verði, samkvæmt því sem frv. gerir ráð fyrir, að fyrirtæki sem að minni hluta væri í eigu ríkisins.
Ég gerði jafnframt grein fyrir því við 1. umr. að í núgildandi lögum er gert ráð fyrir að hægt sé að selja starfsmönnum 30% af fyrirtækinu en þar hefur ekki reynst neinn áhugi einfaldlega vegna þess að þeir starfsmenn hafa að sjálfsögðu haft þá hugsun að þeir vildu gerast meirihlutaaðilar í fyrirtækinu og að því er stefnt einmitt með þessari breytingu sem hér er.
Varðandi það sem báðir hv. þm. hafa sagt um nál. má minna á að stundum hefur komið fyrir að nefndir hafa látið sína skoðun í ljós í nál. Hér hafa hv. þm. komið og greitt atkvæði á ákveðnum forsendum þannig að það út af fyrir sig er ekkert nýtt. Þegar borið er saman það sem stendur í nál. Ed. og svo nál. Nd. má sjá að þar er fjallað um sömu aðilana. Þegar litið er á nál. Nd., sem kveður á um fastráðna starfsmenn fyrirtækisins, svo og hótelstjóra Edduhótelanna, og það borið saman við nál. Ed., þar sem talað er um jafnt fastráðna sem lausráðna, svo sem sumarráðna starfsmenn Edduhótelanna, er hér rætt um sömu starfsmenn í báðum tilfellum. Það sem hér er fyrst og fremst verið að gera, að mínum dómi, er að nefndirnar vilja lýsa skoðun sinni á því að það sé ekki aðeins það skrifstofufólk sem vinnur hjá Ferðaskrifstofunni hér í Reykjavík sem sé aðilar hér að máli.
Ég met það sem kemur fram í nál. leiðbeinandi yfirlýsingu fyrir ráðherra í því starfi sem hann vinnur eftir að slíkt frv. hefur verið gert að lögum. Hann hlýtur að sjálfsögðu að hafa náið samstarf við starfsmannafélagið hjá viðkomandi stofnun og ég á ekki von á að þar verði um ágreining að ræða. (SJS: Hvoru nál. ætlar ráðherrann að fara eftir?) Á meðan hv. þm. ræddi við hv. formann þingflokks Framsfl. gerði ég einmitt grein fyrir því að hér er átt við nákvæmlega sama fólk, bara með mismunandi orðalagi.
Ég tel svo ekki ástæðu til að tefja þessar umræður en vil aðeins undirstrika að hjá báðum nefndum er verið að tala um að það séu aðrir en þeir sem vinna hér á skrifstofu fyrirtækisins sem þar komi til greina.