10.05.1988
Neðri deild: 102. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7927 í B-deild Alþingistíðinda. (6064)

466. mál, ferðamál

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Ég er einn þeirra sem er ekki yfir mig hrifinn af því að takmarka kaupendur að ríkisfyrirtækjum við starfsmenn eingöngu. Ég er mjög langt frá því að geta samþykkt það. Ríkisfyrirtæki eru jafnt eign allra landsmanna. Það er alveg sama og skiptir engu máli hvort þeir sem vinna hjá fyrirtækinu eru eitthvað öðruvísi fólk í augum þeirra sem hafa búið til þetta frv. eða ekki. Það eiga allir landsmenn að hafa jafnan rétt til þess að kaupa hlut, til að kaupa ríkisfyrirtæki. Því harma ég það að hér skuli vera á margan hátt í þessu frv. mótsagnakenndar yfirlýsingar um það hvernig koma skal fyrirtækinu yfir í hendur starfsfólksins. Með leyfi forseta ætla ég að fara í gegnum frv. og lesa það eins og var óskað eftir hér áðan. En þar segir:

„1. gr. 9. gr. orðist svo: Ríkisstjórninni er heimilt að beita sér fyrir stofnun hlutafélags er taki við núverandi rekstri Ferðaskrifstofu ríkisins og annist félagið fyrirgreiðslu og skipulagningu ferða fyrir íslenska og erlenda ferðamenn. Heiti félagsins verði Ferðaskrifstofa Íslands hf. Í því skyni er ríkisstjórninni heimilt:" - Það er best ég geri athugasemd hér. Mig minnir, ég þori ekki að fullyrða neitt um það en óska eftir því að það verði kannað, að það sé bannað að nota nafn landsins, nafn Íslands í fyrirtækjaheiti. Það getur verið að það sé í öðrum lögum. Það getur verið að þessi lög, verði þau samþykkt, séu þá sterkari, en mig minnir að svo sé. (SJS: Hvernig er með Hótel Ísland?) Það eru þá bara mistök ef það er búið að skrá það. Ég held að hlutafélagaskráin eigi að gæta hagsmuna þjóðarinnar í þessum efnum. - Ég held áfram lestrinum:

„a. Að leggja allar eignir og fylgifé Ferðaskrifstofu ríkisins til hins nýja hlutafélags og skal þá hafa hliðsjón af mati sem framkvæma skal á eignum fyrirtækisins, þar með talin viðskiptavild.“ — Hver á að meta þessa viðskiptavild? Á viðskiptavildin og á fyrirtækið með öllum eignum að vera metið? Ætlar ríkissjóður í þessu tilfelli að tryggja það að langstærstu viðskiptavinir Ferðaskrifstofu ríkisins haldi áfram að skipta ár og tíðir við Ferðaskrifstofu Íslands hf.? Stærsti viðskiptavinurinn er ríkið sjálft. Langstærsti viðskiptavinurinn. Það er verið að selja aðgang að því að ríkið versli eingöngu við þessa ferðaskrifstofu áfram. Og að meta á þennan hátt fyrirtæki sem þú ætlar að selja, það held ég að standist bara ekki eðlilega viðskiptahætti. Ég held að það verði að bjóða fyrirtækið til sölu og fá tilboð í það, síðan er hægt að taka eða hafna tilboðum. - Síðan kemur b-liður:

„b. Að ákveða fjárhæð einstakra hluta með það í huga að einstaklingar geti keypt hlut í félaginu.“ Einstaklingar eru mismunandi færir um að leggja fram peninga. Sumir eiga mikið af þeim, aðrir eiga lítið. Það getur verið að það sé eins með starfsfólk Ferðaskrifstofu ríkisins. Það er mismunandi ríkt. Ég efast um að þvottakonan, sem hér var talað um áðan, hafi efni á því að kaupa hlutabréf í samræmi við, við skulum segja forstjórann, miðað við það að tekjumunurinn hlýtur að vera mjög mikill á milli þessara tveggja starfsmanna fyrirtækisins sem hvor á sinn hátt er jafnverðmætur starfsmaður fyrirtækisins. Þannig að það stenst ekki að það eigi að meta hlutina, þrátt fyrir mat eða þrátt fyrir tilboð, það lágt að allir geti keypt þá. Það bara stenst ekki.

„c. Að selja 2/3 af hlutafé ríkissjóðs í fyrirtækinu.“ - Það er líka spurningarmerki. Ef ríkið er að selja fyrirtæki á annað borð þá á að selja það allt og vil ég þá vekja athygli á brtt. sem kom fram í Ed. á þskj. 938, flutt af Guðmundi Ágústssyni.

Ég man nú ekki í augnablikinu hvað það þýðir að „ákvæði 2. mgr. 3. gr. laga um hlutafélög, nr. 32 12. maí 1978, gildir ekki um tölu stofnenda hlutafélagsins.“ Ég hef aldrei vitað að það væri takmarkaður fjöldi stofnenda hlutafélags. Ég þekki það ekki. En síðan stendur:

„Starfsmenn Ferðaskrifstofu ríkisins skulu eiga forkaupsrétt að hlutafénu, enda náist samkomulag um verð og greiðsluskilmála.“ - „Enda náist samkomulag um verð og greiðsluskilmála.“ Til hvers er þá verið að meta fyrirtæki með það í huga að selja það á mati og þá taka viðskiptavild þar inn í líka? Til hvers er þá verið að ákveða fjárhæð einstakra hluta með það í huga að einstaklingar geti keypt hlut í félaginu ef það á svo bara að vera samkomulagsatriði milli aðila hvort þeir geta keypt eða keypt ekki? Sem sagt: Ef forstjórinn vill kaupa 100 bréf og hann á peninga til þess en þvottakonan, sem minnst var á hér áðan, vill líka kaupa 100 bréf, á þá að meta það við tekjur þvottakonunnar? Þá kosta hennar 100 bréf svona mikið af því hún er tekjulítil hjá fyrirtækinu og hún þarf að lifa af sínum launum og það verður þá hlutfallslega það mikið meira sem 100 bréf forstjórans kosta. Mér finnst þessi 1. gr. svo mótsagnakennd að þetta gengur ekki upp og þess vegna get ég ekki staðið að þessu frv.

Ég er ákaflega ánægður með þann hluta af 2. gr. þar sem segir að fastráðnu starfsfólki ferðaskrifstofunnar nýju skuli gefinn kostur á sambærilegum störfum og það hafði hjá Ferðaskrifstofu ríkisins þegar hún hefur verið lögð niður.

En ég vara við að samþykkja þetta frv. svona eins og það kemur frá nefndum og ég skil bara ekkert í því að nefndirnar skyldu ekki taka eftir þessum augljósu hlutum í 1. gr. frv. Ætlar ríkið að tryggja hinu nýja félagi ótakmarkað eða svo lengi sem félagið lifir þessa viðskiptavild við ríkið? Því það er gríðarlegur fjöldi og stórar upphæðir sem fara frá ríkinu og ráðuneytunum öllum í ferðalög sem eru á vegum ríkisins til útlanda þó við tölum nú ekki um það sem er innan lands. En það er gríðarlega mikil viðskiptavild og væri hægt að reka fyrirtækið með góðum ágóða. Hvaða fyrirtæki sem er. Og ég er alveg viss um það að ef það eitt væri boðið út þá hefði ríkið áreiðanlega talsvert upp úr því í þeirri samkeppni.

Ég endurtek að ef það á að fara að ákveða fjárhæð einstakra hluta með það í huga að einstaklingar geti keypt hlutinn í félaginu og halda svo áfram að segja „enda náist samkomulag um verð og greiðsluskilmála“ - bæði um verðið og greiðsluskilmálana - ég hefði skilið hefði það verið greiðsluskilmálar en ekki verð. En þetta rekst hvað á annars horn og ég kem hér upp til þess að benda hæstv. ráðherra á að með svona vegferð í sölu á þessu fyrirtæki þá er það flækja sem ekki verður komist út úr vegna þess að starfsfólkið notar sér náttúrlega það sem hentugast er þarna og kannski kemur sér verst fyrir ríkið eins og eðlilegt er.

En auðvitað á að standa þannig að málum að bjóða þetta fyrirtæki út. Bara á frjálsum markaði. Þjóðin á þetta fyrirtæki, fólkið í landinu á fyrirtækið. Það eiga allir að fá að taka þátt í að eignast hlut í þessu og að sjálfsögðu, eins og segir í 2. gr., á að tryggja að starfsfólkið líði ekki fyrir breytinguna og fái áfram hliðstæð störf hjá nýju félagi eða Ferðaskrifstofu Íslands hf.