10.05.1988
Neðri deild: 102. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7931 í B-deild Alþingistíðinda. (6066)
466. mál, ferðamál
Albert Guðmundsson:
Hæstv. forseti. Ég hlýt að hafa misskilið bæði frv. og hæstv. ráðherra vegna þess að ég hélt að þetta frv. væri einmitt gert til þess að selja starfsfólkinu, það væri ekki um annað að ræða en að selja starfsfólkinu Ferðaskrifstofu ríkisins og breyta því í hlutafélag sem héti Ferðaskrifstofa Íslands hf. Þannig að það er ekkert spursmál um að stofna til hlutafélags án þess að hafa kaupendur að bréfunum. Kaupendurnir eru ákveðnir í þessu frv. til laga.
Í frv. segir, og ég benti á það í fyrri ræðu minni, að það eigi að hafa hliðsjón af mati. Og á sama tíma bendir hæstv. ráðherra á að nú skuli selja 2/3 af fyrirtækinu en það hafi verið heimild til að selja 30% og starfsfólkið ekki viljað kaupa það. En eftir þeim upplýsingum sem ég hef er það ekki bara að starfsfólkið hafi ekki viljað kaupa vegna þess að það fékk ekki nema 30% af hlutafénu í sína eign, heldur líka vegna þess að það fékk ekki fyrirtækið metið á þann hátt sem það taldi henta sér. Þess vegna vil ég spyrja: Hver á að meta þetta? Að mati hverra? Ég teldi að það væri fyrst og fremst ekki að mati þeirra sem ætla að kaupa. Það var áður. Ég get ekki séð að það eigi að dragast neitt að seljá þessi bréf eða að Ferðaskrifstofa Íslands hf. verði munaðarleysingi í langan tíma því frv. er bara bókstaflega til þess að breyta um nafn og afhenda fólkinu hlutabréf að 2/3. Hvernig það er að sé hægt að gera samkvæmt þvi sem frv. segir til um, það bara skil ég ekki. Fyrst á að meta það og það á að meta það með viðskiptavild, sem liggur að verulega miklu leyti í viðskiptum ríkisins sjálfs, og það veit hæstv. samgrh. eins vel og ég. Við höfum báðir verið fjármálaráðherrar og vitum hvað þetta þýðir. Síðan á að ákveða einstaka hluti með það í huga að einstaklingar geti keypt hlut í félaginu. Þá er ekki lengur farið eftir mati í a-lið, þá er farið eftir kaupgetu einstaklinga í b-lið, og svo endar það í síðustu setningunni með því að það skuli nást samkomulag um verð og greiðsluskilmála. Hvernig á að skilja þetta?
Það er ekki hægt að selja fyrirtæki með svona flóknum skilmálum sem stangast á í frv. Svo ég bið nú hæstv. ráðherra að skilja það að ég er ekki að mæla á móti því að selja fyrirtækið. Ég er bara að láta í ljós þá skoðun fyrst og fremst að ríkisfyrirtæki sem eru seld skuli vera seld þegnunum sem eiga þau. Það er það sem við erum að gera, við erum að koma þeim af ríkinu yfir á hluthafa og það á hver og einn þegn, hvort sem hann vinnur eða vinnur ekki hjá fyrirtækinu að hafa aðgang að því að eignast hlut í því ef hann óskar.
Í öðru lagi að það verði miklu skýrara eftir hvaða leiðum verður farið, hvort sem farið verður eftir mínum hugmyndum, um að selja hverjum sem er hlut í fyrirtækinu, eða að selja starfsfólkinu ef það verður ofan á. En bara að það verði ekki þannig að þau geti sagt: ja, við viljum ekki hafa hliðsjón af þessu mati sem einhver hefur gert, eða að það skuli ákveða fjárhæð hluta með það í huga að einstaklingar geti keypt hlut í fyrirtækinu, eða að það eigi að vera samkomulag, eigi að þrasa við hvern og einn um verð og skilmála. Það eru þrír möguleikar í þessu og það er þetta sem ég er að benda á en ég er ekki að leggja mat á hvort það eigi að selja eða ekki að selja, því ég er sammála um að það eigi að selja.