10.05.1988
Neðri deild: 102. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7933 í B-deild Alþingistíðinda. (6071)
477. mál, þinglýsingalög
Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til l. um breyt. á þinglýsingalögum, nr. 39 frá 10. maí 1978. Þetta frv. er fylgifrv. með umferðarlögum sem þegar hafa hlotið samþykki hjá þessari hv. deild.
Nefndin hefur athugað frv. og leggur til að það verði samþykkt óbreytt.
Óli Þ. Guðbjartsson var fjarstaddur afgreiðslu málsins.
Undir nál. skrifa Ólafur G. Einarsson, Jón Kristjánsson, Sighvatur Björgvinsson, Guðni Ágústsson, Geir Gunnarsson og Valdimar Indriðason.