10.05.1988
Neðri deild: 103. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7935 í B-deild Alþingistíðinda. (6079)
466. mál, ferðamál
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Ég hefði nú talið eðlilegt að forseti tæki fyrir annað mál og dreifði þessari till. þannig að hann hefði hana skriflega fyrir framan sig. En hafi ég tekið rétt eftir gengur þetta út á það að starfsmannafélag verði að vera stofnað og það kaupi svo bréf í því hlutafélagi sem ætlunin er að stofna. Það er ekkert sem bannar það að starfsmannafélag verði stofnað og kaupi sér hlut. Með því virðum við félagafrelsi. Hitt er annað mál að mér finnst dálítið hæpið að skylda til þess að sú ein leið skuli farin. Þess vegna tel ég að ekki sé efni til þess að samþykkja þessa till.