10.05.1988
Neðri deild: 103. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7942 í B-deild Alþingistíðinda. (6098)
431. mál, virðisaukaskattur
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Hér er verið að taka á Alþingi lokaafstöðu í stóru máli og ég held að sjaldan hafi á síðari árum verið lagt líkt mál jafnilla undirbúið fyrir þingið. Það er ekki að undra þótt það séu innantökur í stuðningsliði ríkisstjórnarinnar þegar greidd eru atkvæði hér, eins og gerðist við 2. umr. málsins, og það drýpur ólundin af öðrum hverjum manni. Það er kannski skiljanlegt að hér er tæpast hægt að afgreiða mál á þessu kvöldi vegna þess hversu fáir stjórnarliðar eru til að þoka málum fram. Þetta er slæmt vegarnesti sem hér er lagt upp með, þessi skattkerfisbreyting, og það er ekki ástæða til mikillar bjartsýni þó að málið eigi nú þegar að fara í endurskoðun á vegum stjórnarflokkanna.
Þetta mál ætti ekki að fara lengra, þessi skattlagning, en við fáum að sjá hvað kemur upp úr endurskoðuninni að hausti. Ég treysti henni hins vegar ekki og segi nei.