10.05.1988
Neðri deild: 103. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7942 í B-deild Alþingistíðinda. (6099)
431. mál, virðisaukaskattur
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Þetta frv., ef að lögum verður, er dapurleg niðurstaða fyrir ýmsa. Það er því vel við hæfi að hv. 2. þm. Norðurl. v. deyfi ljósin þegar það er afgreitt. Þetta er í fyrsta lagi dapurleg niðurstaða fyrir þingið vegna þeirra vinnubragða sem við þessa lagasetningu hefur verið beitt. Þetta er í öðru lagi dapurleg niðurstaða fyrir Alþfl., hinn svokallaða jafnaðarmannaflokk á Íslandi, sem ætlaði fyrir kosningarnar að leggja á stóreignaskatt og skattleggja gróða en situr nú uppi með matarskatt. Í þriðja lagi er það dapurleg niðurstaða fyrir listir og menningu í landinu að fá yfir sig þá menningarstefnu frá stjórnvöldum að lagður er sérstakur skattur á þessa starfsemi. Þetta er dapurleg niðurstaða fyrir íslenskan landbúnað þar sem varanlega er festur í sessi skattur á matvælaframleiðsluna. Og þetta er dapurleg niðurstaða fyrst og fremst og síðast en ekki síst fyrir fólkið í landinu, fyrir almenning í landinu sem á betra skilið en þetta af sinni ríkisstjórn. Ég segi nei.