10.05.1988
Efri deild: 99. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7945 í B-deild Alþingistíðinda. (6115)

Vinnubrögð í efri deild

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Nú háttar svo til að þingmenn eiga hér órædd frv. í deildinni. Þm. höfðu litlu að sinna í dag og tíminn er ekki notaður til þess að ræða þmfrv. sem fyrir liggja. Ef við höfum nú 11/2 tíma aflögu er spurning hvort við getum ekki byrjað á þmfrv. úr því verið er að kalla okkur hingað niður eftir í 20 mínútur í staðinn fyrir að leyfa mönnum að vera í næði.