10.05.1988
Efri deild: 99. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7946 í B-deild Alþingistíðinda. (6118)
Vinnubrögð í efri deild
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Það er svolítið merkilegt að hv, þm. stærsta stjórnarflokksins koma upp í ræðustól í hv. deild fund eftir fund og þurfa að krefjast þess að mál þeirra komi til umfjöllunar. Það er ekki langt síðan hv. þm. Egill Jónsson þurfti að beita allt að því málþófi til þess að hans mál yrði tekið hér á dagskrá.
Nú sýnist mér að mál séu á þann veg að hv. þm. Halldór Blöndal, ja, ég er nú að láta mér detta það í hug að hann sé að beina því til forseta að það séu tekin upp mál eins og t.d. tillaga hans um breytingu á samvinnulögum eða um húsnæðismál. Því ekki að nota tímann til þess að lofa stjórnarþm. að sjá samstöðuna í ríkisstjórninni um málin sem þeir eru að leggja fram og vilja að fjallað sé um á hv. Alþingi? Ég held að fróðlegt væri að heyra hvað samstaðan er mikil í sambandi við breytinguna á samvinnulögum, það væri fróðlegt að heyra það. Og það væri bara fróðlegt að heyra framsögu hv. þm. um það mál á hv. Alþingi.
Ég beini því eindregið til forseta að við notum þennan tíma og við hefðum átt að nota tímann í dag til þess að fá að fjalla um þessi mál og heyra hvernig stjórnarliðar taka á þeim málum. Það getur vel verið að stjórnarandstæðingur mundi blanda sér aðeins í umræðuna, en það hefur frekar verið kvartað undan því að haldið hafi verið uppi málþófi á tímum eins og þessum. Það virðist vera þannig að hálfgerð verkleysa sé yfir starfsemi hv. deildar þannig að ég tel sjálfsagt að orðið verði við þessum óskum (EgJ: Verkleysa - hún er bara búin.) Það er ekkert verið að gera. Við erum látin bíða hér eftir því að eitthvað gerist einhvers staðar annars staðar í þinghúsinu. (Gripið fram í: Það er bara hangs.) Það er bara hangs já.