11.05.1988
Sameinað þing: 83. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7960 í B-deild Alþingistíðinda. (6148)

147. mál, skoðanakannanir

Frsm. félmn. (Salome Þorkelsdóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. frá félmn. á þskj. 1090 um till. til þál. um setningu laga eða reglna um skoðanakannanir. Nefndin hefur fjallað um tillöguna og er sammála um að mæla með að hún verði samþykkt.

Tillagan var send til umsagnar til Blaðamannafélags Íslands, Félags þjóðfélagsfræðinga og Félagsvísindastofnunar Háskólans. Umsögn barst frá Félagi þjóðfélagsfræðinga.

Nefndin leggur til að till. verði samþykkt svo breytt:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd er kanni hvort rétt sé að setja lög eða koma á reglum um skoðanakannanir.

Nefndin skal jafnframt kanna hvort fullnægjandi sé að koma á fót samstarfi þeirra sem fást við gerð skoðanakannana og tryggja að þeir setji sér starfsog siðareglur sem eftir verði farið án þess að lagasetning komi til.“

Hjörleifur Guttormsson sat fundi nefndarinnar og er sammála áliti þessu. Undir nál. rita Salome Þorkelsdóttir, Guðmundur Ágústsson, Guðni Ágústsson, Eiður Guðnason, Þórhildur Þorleifsdóttir, Ólafur G. Einarsson og Alexander Stefánsson.