11.05.1988
Sameinað þing: 83. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7960 í B-deild Alþingistíðinda. (6149)

147. mál, skoðanakannanir

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar flm. þakka hv. félmn. fyrir vinnu sína að þessari tillögu. Ég fagna því mjög að nú verði tekið á þessum málum, enda ærin þörf.

Ég er mjög sáttur við þá útgáfu af tillögunni sem hv. nefnd leggur til í brtt. sinni og legg eindregið til að hún verði samþykkt.