11.05.1988
Sameinað þing: 83. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7962 í B-deild Alþingistíðinda. (6155)

66. mál, dreifing sjónvarps og útvarps

Frsm. félmn. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um till. til þál. um dreifingu útvarps og sjónvarps frá félmn. Nefndin hefur fjallað um till., sem er á þskj. 69, og sent hana til umsagnar.

Nefndarmenn eru sammála um að mæla með samþykkt till. svo breyttrar: Tillgr. orðist svo: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta nú þegar gera kostnaðar- og framkvæmdaáætlun um að útsendingar Ríkisútvarpsins, þ.e. hljóðvarps og sjónvarps, náist hvar sem er á landinu og á helstu fiskimiðum við landið.

Áætlunin miðist við að hægt verði að framkvæma þetta verkefni fyrir árslok 1991.“

Hjörleifur Guttormsson sat fundi nefndarinnar og er samþykkur áliti þessu. Undir þetta nál. skrifa allir nefndarmenn, Salome Þorkelsdóttir, formaður, Guðmundur Ágústsson, Alexander Stefánsson, Eiður Guðnason, Ólafur G. Einarsson, Þórhildur Þorleifsdóttir og Guðni Ágústsson.