16.11.1987
Sameinað þing: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 950 í B-deild Alþingistíðinda. (616)

59. mál, lífríki Tjarnarinnar í Reykjavík

Flm. (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. sem er að finna á þskj. 61 og er 59. mál þingsins, en það er till. um rannsóknir á lífríki Tjarnarinnar í Reykjavík. Meðflutningsmenn mínir að þessari till. eru hv. þm. Albert Guðmundsson, Guðmundur Ágústsson, Guðrún Agnarsdóttir, Kristín Einarsdóttir og Svavar Gestsson. Till. hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hefja nú þegar viðræður við borgaryfirvöld í Reykjavík um að ítarlegar rannsóknir fari fram á áhrifum byggingar ráðhúss í Tjörninni á lífríki hennar áður en framkvæmdir hefjast, sbr. 29. gr. laga um náttúruvernd, nr. 47/1971.“

Herra forseti. Trúlega eru allir landsmenn sammála um það að Tjörnin í Reykjavík og umhverfi hennar séu hið eiginlega hjarta höfuðborgarinnar. Sú lifandi náttúra sem þar þrífst í miðri hringiðu borgarlífsins hefur verið sú vin sem dregið hefur að sér unga og gamla í önn dagsins árið um kring. Fjölskrúðugt fuglalífið hefur glatt börn borgarinnar sumarlangt og á vetrum hefur Tjörnin verið vettvangur hollrar útivistar við leiki og íþróttir. Gömlu húsin við Tjarnargötu hafa myndað umgjörð um Tjörnina sem samræmist vel kyrrlátri fegurð hennar þó að stórslys hafi orðið í skipulagi Vonarstrætis með byggingu Oddfellow-hússins sem mjög raskar rósemi þessarar annars rólegu götumyndar. Og nú stendur til að byggja ráðhús út í Tjörnina.

Tillagan sem ég mæli fyrir fjallar þó ekki um skipulagsmál eða hvort sú bygging skuli rísa eða ekki þó að víst hafi ég á því skoðun, heldur hitt, að lífríki Tjarnarinnar verði varðveitt svo sem kostur er.

Við hér í höfuðborginni höfum ekki af að státa merkum fornum byggingum eins og margar aðrar höfuðborgir. En við höfum það sem þær hafa ekki, við höfum náttúruminjar sem varla eiga sinn líka í nokkurri höfuðborg. Ein þeirra og sú sem stendur næst hjarta hvers einasta Reykvíkings er Tjörnin og Vatnsmýrarsvæðið með því iðandi fuglalífi sem ungir og aldnir borgarbúar líta á sem órjúfanlegan þátt daglegs lífs í borginni. Það þarf því enginn að undrast að Reykvíkingum sé annt um Tjörnina og fuglalífið þar og að þeir vilji að það fái að þrífast og að ekkert verði gert sem stefnt geti því lífríki í hættu.

Nú stendur fyrir dyrum að hefja byggingu ráðhúss í Reykjavík og það er alveg ljóst að framkvæmdir þar munu verulega raska Tjarnarsvæðinu um árabil. T.d. þarf vafalítið að þurrka upp stórt svæði í Tjörninni meðan á framkvæmdum stendur.

Við flm. þessarar till. viljum ekkert um það segja hver áhrif ráðhúsbyggingin út í Tjörnina kann að hafa á lífríki hennar og það er ekki hægt að ætlast til þess að við vitum mikið um það vegna þess að rannsókn á því hefur ekki farið fram. Flm. þessarar till. vilja einfaldlega benda á að samkvæmt lögum nr. 47 frá 1971, um náttúruvernd, ber borgaryfirvöldum að leita álits Náttúruverndarráðs á því þar sem Tjörnin og Vatnsmýrin eru á náttúruminjaskrá. Og ég vil ítreka það: Tjörnin og Vatnsmýrarsvæðið eru á náttúruminjaskrá. Í 29. gr. náttúruverndarlaganna segir svo:

„Valdi fyrirhuguð mannvirkjagerð eða jarðrask hættu á því, að landið breyti varanlega um svip, að merkum náttúruminjum verði spillt eða hættu á mengun lofts og lagar, er skylt að leita álits Náttúruverndarráðs, áður en framkvæmdir hefjast.

Ef það er vanrækt, getur Náttúruverndarráð krafist atbeina lögreglustjóra til að varna því, að verk verði hafið eða því fram haldið.

Virkjanir, verksmiðjur og önnur stór mannvirki skulu hönnuð í samræmi við Náttúruverndarráð. Sama gildir um vegalagningu til slíkra mannvirkja.

Nánari fyrirmæli samkvæmt þessari grein setur menntmrn. í reglugerð.“

Í 36. og 37. gr. reglugerðar nr. 205 frá 1973, um náttúruvernd, er þetta ákvæði enn ítrekað.

Nú er ljóst að álits hefur ekki verið leitað hjá Náttúruverndarráði. Tillaga um samkeppni um hönnun ráðhúsbyggingar var samþykkt í borgarstjórn á sl. ári og hún auglýst. Í hönnunargögnum var þátttakendum gert að hafa húsið við Tjörnina, en um byggingarstað þess var ekki bókað sérstaklega í borgarstjórn Reykjavíkur. Í umræðum í borgarstjórn mun hafa verið rætt um þennan stað og í Kvosarskipulagi er gert ráð fyrir ráðhúsi á lóð þeirri sem enn er að finna við Tjörnina, en landlínunni var ekki breytt. Í Kvosarskipulagi er því ekki gert ráð fyrir að ráðhúsið verði byggt út í sjálfa Tjörnina. Ég ítreka þetta vegna þess að þetta er kannski óskýrt hér í greinargerð þar sem segir að í Kvosarskipulaginu sé gert ráð fyrir ráðhúsi á þeim stað sem nú er ákveðinn. Það er ekki alveg rétt. Það var ekki gert ráð fyrir að byggingin næði út í Tjörnina. Vissulega hefði verið full ástæða til að efna til atkvæðagreiðslu um staðsetninguna svo að formlega væri frá því gengið, en það var aldrei gert. Samkeppnin fór síðan fram og verðlaun voru veitt.

Hinn 15. sept. sl. var tillaga borin fram í borgarráði um að byggt skyldi ráðhús eftir tillögu þeirri sem hlaut fyrstu verðlaun í samkeppninni og afgreiðslu hennar vísað til borgarstjórnar. Þar varð ágreiningur um málið og Alþýðubandalagsfulltrúar í borgarstjórn lögðu til að fram færi almenn atkvæðagreiðsla í borginni um þessa byggingu og staðsetningu hennar, en Alþfl. og Kvennalistinn vildu að aðrar framkvæmdir hefðu forgang. Vitanlega var ekkert tillit tekið til skoðana þessara minnihlutaflokka og tillaga meiri hlutans var samþykkt á fundi borgarstjórnar 1. okt. sl.

Þegar sú till. sem hér liggur fyrir var komin fram lagði borgarfulltrúinn Elín G. Ólafsdóttir fram tillögu í borgarstjórn svo til samhljóða þeirri till. sem við höfum borið fram. Þá er leitað umsagnar Þórðar Þ. Þorbjarnarsonar borgarverkfræðings vegna tillögu Elínar um lífríki Tjarnarinnar og var sú umsögn lögð fram í borgarráði. Af hverju borgarverkfræðingur var beðinn um þá umsögn er auðvitað öllum óskiljanlegt því að ekki er vitað sérstaklega til þess að hann sé kunnáttumaður um líffræðileg málefni. Þar er hins vegar staðhæft að þó að væntanlegt ráðhús verði aðallega byggt í Tjörninni hafi bygging þess ekki áhrif á lífríki hennar þar sem hún skerði Tjörnina aðeins um 1%.

„Það er ekkert sem gefur tilefni til að rannsaka lífríki Tjarnarinnar þó hún skerðist um 1% og engar líkur til að bygging ráðhússins hafi meiri áhrif á það heldur en þegar Iðnó eða Dómkirkjan voru byggð við Tjörnina á sínum tíma," sagði Davíð Oddsson borgarstjóri samkvæmt umsögninni, en í umsögn borgarverkfræðings segir að þó að skerðing Tjarnarinnar yrði um 2% benti ekkert til þess að slíkt hefði áhrif á lífríki hennar.

Síðan sagði borgarstjórinn: „Og þegar því er slegið fram verður ekki komist hjá að álykta að menn séu að misbeita vísindalegum hugtökum í því skyni að andæfa áformum sem þeir eru af pólitískum ástæðum andvígir.“

Það er satt að segja alveg furðulegt hvernig þetta mál hefur verið afgreitt. Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík hefur að engu lög um náttúruvernd og segir að ekki sé minnsta ástæða til að leita álits Náttúruverndarráðs vegna þess að skerðing Tjarnarinnar sé ekki meiri en þetta. Ég veit ekki hvort borgarverkfræðingurinn í Reykjavík veit það að síðan 1876 hefur Tjörnin í Reykjavík verið skert um hér um bil 25%. Það segir sig sjálft að þegar þessi bygging er komin þarna langt út í Tjörn þarf auðvitað að skera af Tjörninni miklu meira en hér er talað um vegna þess að það liggur í augum uppi að þær götur sem liggja að þessu húsi geta auðvitað ekki hugsanlega tekið við þeirri umferð sem skapast þegar byggingin er risin.

Borgarfulltrúinn Sigrún Magnúsdóttir, sem átti sæti í dómnefnd um þessa byggingu, sagði vegna tillögu Elínar G. Ólafsdóttur, með leyfi forseta:

„Þegar ég samþykkti byggingu ráðhúss benti ég jafnframt á að rétt væri að hefjast ekki handa fyrr en eftir eitt til tvö ár. Ég tel eðlilegt og sjálfsagt að flýta sér hægt og m.a. fá álit sérfræðinga hvort bygging sem tekur 1–2% af Tjörninni raski eitthvað lífríki hennar.“ Það er einmitt það sem við erum með till. þessari að fara fram á.

Hér í þskj. 61 eru fylgiskjöl og m.a. bréf dr. Árna Einarssonar til borgarskipulags Reykjavíkur frá 28. mars 1987. Ég leyfi mér, herra forseti, að geta þeirra atriða sem hann leggur þar áherslu á. Hann segir:

„1. Ráðhús af þeirri stærð sem um er rætt í samkeppnislýsingu (3375 m2 auk bílageymslu) mun óhjákvæmilega gerbreyta þeirri samfelldu og stílfögru götumynd sem Tjarnargata, Vonarstræti og Fríkirkjuvegur mynda. Ráðhúsið mun standa framar í Tjörninni en flest önnur hús við hana og mun þess vegna verða yfirgnæfandi.

2. Á fyrri hluta aldarinnar var flatarmál Tjarnarinnar rýrt um fimmtung með uppfyllingu. Við byggingu ráðhússins mun verða gengið enn eitt skref á þeirri braut og engin trygging verður fyrir því að framhald verði ekki á þeirri þróun. Skerðing vatnsflatarins mun rýra fegurð Tjarnarinnar.

3. Skerðing Tjarnarbotnsins mun hafa neikvæð áhrif á fuglalífið. Á hverju ári klekjast við Tjörnina 500–600 andarungar. Þeir lifa fyrstu vikurnar á dýrum úr botnleðju Tjarnarinnar. Skerðing á botninum mun leiða til beinnar fækkunar anda.

4. Bílastæði af þeirri gerð, sem fyrirhuguð eru í húsinu, munu valda talsvert aukinni bílaumferð við Tjörnina. Slík aukning mun spilla þeirri friðsæld sem Tjörnin býr yfir.

5. Tjörnin skipar sérstakan sess í hugum borgarbúa. Hún er gluggi að hinni lifandi náttúru og þar fá menn tilfinningu fyrir gangi árstíðanna. Tjörnin er útivistarsvæði þar sem fjöldi manna kemur til að njóta þess unaðar sem landslag og fuglalíf veitir. Nauðsynlegar breytingar á umhverfi Tjarnarinnar eiga að vera í samræmi við þetta — auðvelda fólki að njóta hennar. Með byggingu ráðhúss í Tjörninni væri verið að ýta miðbæjarbyggðinni enn frekar út í Tjörnina en orðið er og það væri í andstöðu við nýtingu Tjarnarinnar sem útivistarsvæðis.“

Árið 1968 skilaði náttúruverndarnefnd Reykjavíkur þessu áliti um Tjörnina, og vil ég lesa það upp, með leyfi forseta:

„Þá mætti að lokum geta þess að nefndin telur ástæðu til þess að haft sé eftirlit með Tjörninni og umhverfi hennar, að ekki sé skert flatarmál hennar, hreinlæti vatnsins sé ekki spillt og að fuglar hafi þar friðland og sérstaklega sé kríunni helgaður hólminn og yfirleitt sé dýralíf og gróður Tjarnarinnar varðveittur.“

Í náttúruverndarnefnd Reykjavíkur áttu þá sæti þrír þjóðkunnir menn: Ármann Snævarr, sem var formaður nefndarinnar, Kristján Eldjárn og Sigurður Þórarinsson.

Í fylgiskjölum með till. okkar er einnig að finna skemmtilegt yfirlit um sögu Tjarnarinnar sem Páll Líndal hefur tekið saman og ég vil ráðleggja hv. þm. að lesa þá grein, hún hefur ekki birst áður á prenti, en Páll Líndal, fyrrverandi borgarlögmaður, lánaði okkur hana góðfúslega.

Einu sinni var borgarstjórinn í Reykjavík ungur og skemmtilegur og þá stóð hann ásamt öðrum að frægri hljómplötu sem hét Matthildur. Um það leyti var mikil umræða um verndun gamalla húsa og verndun miðbæjarins. Þeir bráðskemmtilegu þremenningar lögðu þá til að sett yrði matarlím í Tjörnina og hún flutt upp í Árbæ. Tillögur á borð við það hafa áður komið fram, eins og segir í greininni eftir Pál Líndal:

„Árið 1882 ritaði Luders nokkur múrarameistari bréf til bæjarstjórnar og bauðst til að fylla upp í Tjörnina fyrir 7112,50 kr.“

Og Tjörnin virðist endalaust þurfa að vera vettvangur fyrir hugmyndir af þessu tagi, að hún skuli skert, og það skýtur skökku við í borg sem hefur yfir eins miklu landrými að ráða og Reykjavíkurborg að ganga skuli þurfa á svæði eins og Tjarnarsvæðið í Reykjavík.

Það væri hægt að rekja hér í löngu máli alla þá formgalla sem á þessu máli hafa verið í meðferð borgarstjórnarinnar í Reykjavík, en til þess gefst ekki tími.

Á fjölmennum útifundi, sem haldinn var hér í gær til verndunar Tjarnarinnar, mátti heyra sárindi manna út af meðferð þessa máls.

Tilgangur okkar, flm. þessarar till., er að reyna að fá borg og ríki til að taka höndum saman um þær náttúruminjar sem hér um ræðir og eru ekki einkaeign Reykjavíkur heldur eign þjóðarinnar allrar samkvæmt náttúruminjaskrá. Við treystum á hv. þm. að standa saman um að koma í veg fyrir að hér verði gerð mistök sem aldrei verður hægt að bæta.