11.05.1988
Sameinað þing: 83. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7964 í B-deild Alþingistíðinda. (6160)

398. mál, akstur utan vega

Frsm. félmn. (Salome Þorkelsdóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 1095 frá félmn. um till. til þál. um akstur utan vega. Nefndin hefur fjallað um till. og er sammála um að mæla með samþykkt hennar svo breyttrar. Tillgr. orðist þá svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela dómsmrh. að skipa nefnd fulltrúa þingflokkanna til að gera tillögur um æskilegar breytingar og samræmingu laga og reglna um akstur torfærutækja og annarra vélknúinna tækja utan vega og merktra slóða og leita úrræða um hvernig koma megi í veg fyrir náttúruspjöll af þeim sökum.

Með nefndinni starfi fulltrúar dómsmrn., menntrn. og samgrn.

Nefndin skili skýrslu og tillögum til næsta reglulegs Alþingis.

Kostnaður við störf nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.“

Hjörleifur Guttormsson sat fundi nefndarinnar og er samþykkur áliti þessu. Undir nál. rita Salome Þorkelsdóttir, Guðmundur Ágústsson, Guðni Ágústsson, Eiður Guðnason, Ólafur G. Einarsson, Þórhildur Þorleifsdóttir og Alexander Stefánsson.