11.05.1988
Sameinað þing: 83. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7966 í B-deild Alþingistíðinda. (6165)

94. mál, þjónustumiðstöð fyrir heyrnarskerta

Frsm. félmn. (Salome Þorkelsdóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 1097 frá félmn. um till. til þál. um þjónustumiðstöð fyrir heyrnarskerta.

Nefndin hefur fjallað um till.,og sent hana til umsagnar til Öryrkjabandalags Íslands, póst- og símamálastjórnar, Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar, Heyrnarhjálpar, félags heyrnarlausra, Fjárlaga- og hagsýslustofnunar og Tryggingastofnunar ríkisins. Umsagnir hafa borist frá öllum þessum aðilum.

Nefndin tekur undir mikilvægi textasíma- og túlkaþjónustu fyrir heyrnarskerta, en þar sem nefnd á vegum félmrh. starfar nú að þeim málum sem till. tekur til leggur nefndin til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Hjörleifur Guttormsson sat fundi nefndarinnar og er samþykkur áliti þessu. Undir það rita Salome Þorkelsdóttir, Guðmundur Ágústsson, Guðni Ágústsson, Eiður Guðnason, Ólafur G. Einarsson, Þórhildur Þorleifsdóttir og Alexander Stefánsson.

Mér þykir rétt að geta þess að sú nefnd sent félmrh. skipaði í nóvember sl. um málefni heyrnarlausra hefur starfað í allan vetur og er nú u.þ.b. að skila af sér til hæstv. ráðherra. Að vísu voru verkefni nefndarinnar víðtækari en um getur í þessari till. Henni var falið að fjalla yfirleitt um félagslega stöðu heyrnarlausra, þar á meðal aldur heyrnarlausra, orsakir heyrnarleysis, aðstæður, húsnæði, fjölskylduaðstæður, atvinnuástand, tekjur, tryggingabætur, afkomu, félagsleg tengsl, menntun, fullorðinsfræðslu og jafnframt að kanna á hvaða sviðum heyrnarlausir njóti ekki þeirrar þjónustu sem heyrandi njóta almennt í tengslum við fjölmiðla, dagheimili, skóla, fullorðinsfræðslu og félagslega þjónustu og enn fremur að gera samanburð á þjónustu hér á landi og á Norðurlöndunum og kanna hver er þörf fyrir túlkaþjónustu hér á landi.

Nefndin kannaði einnig það sem snýr að textasímamálum heyrnarlausra og einn liður í könnun á félagslegum aðstæðum er að kanna þörf fyrir túlka. Þá var tekið á tollamálum vegna innflutnings myndbanda frá Norðurlöndum fyrir heyrnarlausa, niðurgreiðslu á síma og dagskrárgerð ríkissjónvarps fyrir heyrnarlausa. Af þessu má sjá að þessi nefnd hefur starfað að hagsmunamálum heyrnarlausra.

Það er kannski rétt að geta þess að í þessari nefnd voru tveir fulltrúar heyrnarlausir og þess vegna voru túlkar á öllum fundum þannig að tjáskipti gengu eðlilega fyrir sig með aðstoð túlksins.

En af þeim ástæðum sem ég hef nú skýrt leggur nefndin til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.