11.05.1988
Sameinað þing: 84. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7971 í B-deild Alþingistíðinda. (6176)
Kosning eins manns í bankaráð Seðlabanka Íslands
Albert Guðmundsson:
Hæstv. forseti. Ég lít á þessa túlkun forseta sem ranga og harma hana vegna þess að þegar Alþfl. fékk umrædda menn í bankaráð Seðlabankans var Alþfl. í stjórnarandstöðu. Það getur enginn réttlætt það að það sé lýðræðisleg kosning að stjórnarliðar hafi fjóra menn af fimm í einhverri stjórn, hvað þá í þeirri virðulegu stofnun sem Seðlabankinn er.