11.05.1988
Neðri deild: 104. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7972 í B-deild Alþingistíðinda. (6182)
Starfslok neðri deildar
Forseti (Jón Kristjánsson):
Þar sem þetta er síðasti fundur þessarar hv. þingdeildar vil ég leyfa mér að þakka hv. þingdeildarmönnum sérstaklega góða viðkynningu og samstarf á liðnum vetri. Ég þakka varaforsetum deildarinnar ómetanlega aðstoð í störfum. Skrifurum færi ég þakkir fyrir þeirra miklu trúnaðarstörf í deildinni. Starfsfólki skrifstofu Alþingis vil ég þakka sérstaklega ómetanlega aðstoð og ánægjulegt samstarf sem og öllu öðru starfsfólki Alþingis.
Ég bið þingmönnum og fjölskyldum þeirra allra heilla og óska þess að sumarið verði þeim sem og öðrum landsmönnum gott og gjöfult og við megum hittast hér hellir að hausti. Ég óska hv. þingdeildarmönnum góðrar heimferðar og góðrar heimkomu.