16.11.1987
Sameinað þing: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 956 í B-deild Alþingistíðinda. (620)

59. mál, lífríki Tjarnarinnar í Reykjavík

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Ég leyfi mér að benda hæstv. forseta á að ef hann ætlar að hefja rökræður við einhvern þm. á hann að víkja sæti og taka til máls án þess að sitja í forsetastóli eða vera þar, eins og gerðist áðan. Ég fór ekkert út fyrir það sem hér er verið að ræða. Hér var rætt um aukna umferð vegna ráðhúss o.s.frv. Við erum að ræða um nákvæmlega þetta svæði hér. Það var algerlega eðlilegt að ég kæmi inn á þetta efni nákvæmlega eins og hér er verið að tala um umferðargötur og hverfið allt í heild, Kvosina sjálfa. Það liggur í hlutarins eðli. En ég hef ekkert á móti því að hefja rökræður við hæstv. forseta beint um byggingu — eða vonandi ekki byggingu — nýs þinghúss með þeim hætti sem fyrirhugað er. En ég bendi forseta á að þá á að gera það án þess að hann sitji í forsetastóli.