16.11.1987
Sameinað þing: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 958 í B-deild Alþingistíðinda. (624)

59. mál, lífríki Tjarnarinnar í Reykjavík

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Vegna þess að þm. úr landshlutum sem liggja allfjarri Reykjavík eru farnir að blanda sér í umræðu um þetta mál, og raunar kom þm. Reykn. í ræðustól áðan, þá vil ég að það sjónarmið komi fram af minni hálfu að þetta mál snertir að sjálfsögðu alla landsmenn. Verndun á lífríki, verndun á viðkvæmum stöðum, verndun á stöðum sem settir hafa verið á náttúruminjaskrá af þar til bærum yfirvöldum snertir að sjálfsögðu alla landsmenn. Ég veit ekki hvaðan í ósköpunum sú hugsun er komin í koll hv. þm. Stefáns Guðmundssonar að þetta sé bara mál sem varði Reykvíkinga. Af hverju erum við að setja lög og reglur um verndun náttúruminja og verðmætra staða í landinu og fjalla um það hér á hv. Alþingi ef það kemur ekki öllum við? Við höfum sett lög um verndun Mývatnssvæðisins. Ég held að þm. allra kjördæma hafi tekið þátt í þeirri ágætu löggjöf. Hér var flutt þáltill. af hv. þm. Eiði Guðnasyni og fleirum um stofnun þjóðgarðs við Gullfoss og Geysi, eins og tillagan var upphaflega, vegna þess að þessar náttúruperlur eru þjóðinni kærar og þekktar langt út fyrir landsteina sem kunnugt er. Það er því alveg út í hött að ætla að fara að hengja sig á formsatriði skipulagslaga eingöngu í þessu máli þó svo að við tökum auðvitað tillit til þess sem þar er kveðið á um, um formlega meðferð máls. En það þarf einnig að taka tillit til annarra laga og annarra sjónarmiða þegar fjallað er um mál sem þetta, þar á meðal laga um náttúruvernd. Og það er á grundvelli þeirra laga, sem Tjörnin og Vatnsmýrin hafa verið sett á náttúruminjaskrá.

Ég vona að svona skammsýni sé ekki í hugum margra eins og hér kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni.