16.11.1987
Sameinað þing: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 963 í B-deild Alþingistíðinda. (628)
59. mál, lífríki Tjarnarinnar í Reykjavík
Stefán Guðmundsson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessa umræðu. Ég heyri að mönnum er mikið í mun að þetta mál fái afgreiðslu hér. En orð mín hafa þó ekki verið til einskis sögð ef þau hafa orðið til að bæta andrúmsloftið í Alþb., en þau virðast hafa orðið til þess.
Ég er ekki kominn hingað í ræðustól til að tala sem málsvari meiri hluta Sjálfstfl. í borgarstjórn Reykjavíkur. Ég vænti þess að enginn hafi skilið orð mín svo. En ég segi það enn að ég treysti réttkjörnum borgarfulltrúum hér í Reykjavík til að fara með þetta mál, réttkjörnum fulltrúum Reykjavíkur til að leysa þetta mál og önnur miklu stærri sem þeir þurfa að fást við. Ég efast ekkert um að öllum reglum verði framfylgt sem að þessu máli lúta. Það hefur heldur ekkert komið fram sem bendir til annars en að svo verði ekki gert. Það hefur ekkert komið fram sem bendir til þess að það eigi að troða á rétti einhvers. Það er þungamiðjan í þessu máli. Það er svo vandamál þeirra fulltrúa sem hér tala að hafa ekki komist inn í borgarstjórn Reykjavíkur til að geta haft áhrif þar á málefni borgarinnar. Það er þeirra vandamál en ekki mitt.