16.11.1987
Sameinað þing: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 969 í B-deild Alþingistíðinda. (636)

59. mál, lífríki Tjarnarinnar í Reykjavík

Flm. (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég harma að athugasemdin skuli þurfa að vera stutt, en skal að sjálfsögðu verða við tilmælum um það.

Tillöguflutningur sem þessi á sér gjörsamlega eðlilegar forsendur. Hæstv. félmrh. fer með skipulagsmál og hæstv. menntmrh. fer með náttúruverndarmál. Við afgreiðslu þessa máls í borgarstjórn Reykjavíkur hefur ekki verið farið að lögum sem skyldi, mér gefst því miður ekki tími til að skýra það nánar, hef gert það að nokkru leyti hvað varðar náttúruverndarhliðina, og þess vegna er ekkert óeðlilegt við það að ríkisstjórninni sé falið að taka upp viðræður við borgarstjórn Reykjavíkur. Ég tel það ærið miklu skemmtilegri máta en að rjúka í að kæra Reykjavíkurborg. Það er strax dálítið annað. Ég get hins vegar tilkynnt.hv. þm. að ég yrði ekkert hissa þó að þetta endaði með kæru ef þetta mál nær ekki fram að ganga hér.

Það hefur ýmislegt komið fram sem ástæða væri til að svara, svo sem þessi fáránlega umræða um sjálfstæði sveitarfélaga sem virðast eiga að vera svo sjálfstæð að þau þurfi ekki að lúta landslögum. Mér þætti gaman að spyrja hv. 2. þm. Vestf. hvort það væri goðgá að Reykvíkingar kynnu að skipta sér af því ef sveitarstjórn á staðnum ákvæði að eyðileggja Snorralaug í Reykholti eða eitthvað álíka. Þessi rök eru út í hött og ætti ekki að fara með þau á hinu háa Alþingi.

Ég held að hér sé ekki tími til að gera annað en að biðja hv. þm. að hugsa ráð sitt vel og ekki síst hv. þm. Reykvíkinga. Ég held að sú fullyrðing ýmissa þeirra sem hér hafa talað að við tölum hæst um Tjörnina sem ekkert vitum um hana sé ekki rétt. Töluvert tel ég mig nú hafa komið nálægt þeim stað. Hér hafa í dag talað tveir hv. þm. sem eru líffræðingar að menntun, hv. 2. þm. Austurl. og hv. 12. þm. Reykv. Ég hygg að þessu máli hafi því verið betur borgið faglega en ýmsum öðrum sem hér hafa verið rædd.

En ég bið að lokum menn að veita þessu máli brautargengi. Ég lagði til, herra forseti, áðan að málið yrði falið hv. allshn. til fyrirgreiðslu. Ég held að það sé ekki eðlilegt eftir nánari athugun og vil leyfa mér að leggja til að málið verði sent til hv. félmn. sem fer með, ef ég man rétt, bæði mál er varða félmrn. og menntmrn. Þess vegna hygg ég að eðlilegra sé að málið verði þar.

Ég tel að menn þurfi einfaldlega að gera upp við sig hvort þeir vilja eiga það á hættu, dýpra vil ég ekki taka í árinni, að lífríki Tjarnarinnar verði raskað. Ég veit ekki hvort það gerist við byggingu þessa ráðhúss, en ég legg til að það verði kannað áður svo að ekki þurfi að enda byggingarframkvæmdina með minnismerki um öll litlu börnin sem stóðu þarna og horfðu hugfangin á fuglana á Tjörninni sem í mörgum tilvikum voru fyrstu dýrin sem þau sáu í lifanda lífi.