16.11.1987
Sameinað þing: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 971 í B-deild Alþingistíðinda. (638)
59. mál, lífríki Tjarnarinnar í Reykjavík
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég efast ekki um að það hafi hugur fylgt máli hjá 1. flm., hv. 13. þm. Reykv. Guðrúnu Helgadóttur, þegar hún sagði að sér gengi einungis vingjarnleg sáttfýsi til með þessari tillögugerð, enda sjáum við á meðflm. að hún hefur valið þá í samræmi við þá sem hún veit að liggur best orð til hins virðulega borgarstjóra og eru kannski í nánustum tengslum við hann. Er ég þá að tala um innfædda Reykvíkinga einvörðungu.
Það er margt athyglisvert í umræðum um þessa till. Í fyrsta lagi er af ýmsum þm. verið að ýja að því að með ákvörðun sinni um byggingu ráðhúss við Tjörnina séu borgaryfirvöld vísvitandi og vitandi vits að brjóta gegn lögum um náttúruvernd, 29. gr., og í áróðursskyni er því mjög á loft haldið að nauðsynlegt sé að Alþingi grípi inn í með almennri þáltill. til að koma í veg fyrir lögbrot af því tagi sem þar er lýst. Nú er það svo í lögum um náttúruvernd að gert er ráð fyrir að Náttúruverndarráð geti krafist atbeina lögreglustjóra til að varna því að verk verði hafið eða því fram haldið. Það er sú aðferð sem löggjafinn hefur farið til að tryggja að haldið verði við ákvarðanir Náttúruverndarráðs samkvæmt þessum lögum. Ef einstakir þm. eru nú þeirrar skoðunar að aðferð löggjafans til að tryggja að við þessi lög verði staðið sé ekki fullnægjandi, að Náttúruverndarráð sé annaðhvort þannig valið eða frá því gengið í lögunum að því sé ekki treystandi til að fylgja sínum málum eftir með þeim hætti sem segir í lögunum, þá er hin þinglega aðferð sú að flytja brtt. við náttúruverndarlögin og kveða þá nánar á um hver skuli vera eftirlitsaðilinn. Eins og þessi till. liggur fyrir er engin vísbending um það en á hinn bóginn ljóst að einstakir þm. leggja á sig sérstakan krók og taka sér í munn orð eins og lagabrot til þess með þeim hætti að hafa, að þeir halda, meiri áhrif í fjölmiðlaumræðunni en ef þeir tækju efnislega á málinu.
Ég vil í annan stað segja að umræðan eins og við heyrðum hana hér í dag minnti að sumu leyti á gamlar umræður í borgarstjórn Reykjavíkur. Það voru tveir fyrrverandi borgarfulltrúar sem greinilega höfðu mest til málanna að leggja og kannski ekki að ástæðulausu. En maður getur kannski velt því fyrir sér hvort t.d. hv. 5. þm. Reykv., Albert Guðmundsson, hefði verið flm. að till. eins og þessari á þeim tíma sem hann stóð að meiri hlutanum í borgarstjórninni og væri kannski vegur að rifja upp ýmis ummæli sem hv. þm. hafði á þeim tíma þegar honum þótti hallað á meiri hluta borgarstjórnar eða hallað á þann sjálfsákvörðunarrétt sem hann taldi að borgin ætti að hafa, taldi að afskiptasemi einstakra alþm. gagnvart borginni væri kannski fullmikil. Með sama hætti gæti maður velt því fyrir sér hvort sennilegt væri að formaður Alþb. væri á þáltill. sem fjallaði um að binda með einhverjum hætti hendur bæjarstjórnarmeirihlutans á Neskaupstað.
Vangaveltur af þessu tagi segja okkur auðvitað undir eins að við mundum hafa um það okkar efasemdir sem hefðum fylgst með stjórnmálaumræðu og fjölmiðlum svo áratugum skiptir. Auðvitað er umræðan á þinginu öðrum þræði til þess fallin að reyna að gera tortryggilegt það sem pólitískir andstæðingar okkar hafast að og auðvitað kemur það engum á óvart, á svipuðum tíma og hv. 5. þm. Reykv. lýsir því yfir að hann muni verða í fararbroddi síns flokks í nýjum borgarstjórnarkosningum, að hann skuli þá nota fyrsta tækifæri á hinu háa Alþingi til að veitast að þeim manni sem stendur í fyrirsvari fyrir borgarstjórnarmeirihlutann þó svo að ég muni eftir því að úr þessum ræðustól hafi einmitt þessi sami þm. áfellst þm. vinstri flokkanna fyrir að veitast að borgarstjóranum án þess að hann hafi tækifæri til að svara fyrir sig úr þessum sama stóli. Þetta er bara leikur stjórnmálanna og ég er síður en svo að hafa neitt að því þótt menn með þessum hætti reyni taktískar brellur og tali eins og hagkvæmast er hverju sinni. Þetta verður mörgum á og þetta er hluti af þeim leik sem við erum að leika í þessum sal. Hitt vitum við líka að um leið og við erum að tala um sjálfstæði sveitarfélaga og aukin áhrif þeirra gerum við það vegna þess að þar erum við að tala um annað almannavald en Alþingi sem sækir traust sitt til fólksins sem byggir það sveitarfélag sem borgin markar hér, sem borgarstjórnin starfar á, og auðvitað ber borgarstjórnin að síðustu ábyrgð gagnvart Reykvíkingum. Að því leyti er það léttvægt sem menn segja um innri mál Reykjavíkur úr öðrum kjördæmum að þeir þurfa ekki að standa ábyrgir fyrir þeim sem þar búa sérstaklega, þó þeir með fylgi sínu og atfylgi á Alþingi reyni að setja stein í götu borgarstjórnarmeirihlutans, og ætla ég ekki að gera skipulagsmál Reykvíkinga að jafnmiklu umræðuefni og fyrrverandi borgarfulltrúar hafa hér gert og hafa kunnáttu til að gera. Það ætla ég mér alls ekki.
En eitt vakti líka athygli mína og verður skemmtilegt að fletta því upp í gömlum Alþingistíðindum, hvort allir þeir sem mest hafa talað um umferðaröngþveitið vegna ráðhússins við Tjörnina hafi þá greitt atkvæði gegn hönnun Alþingishússins fyrir einu ári. Miklu stærri og meiri bygging er það en ráðhúsið og auðvitað holur hljómur í þeirri rödd að vilja annars vegar byggja mikið og voldugt alþingishús niðri í Kvosinni, eins og nú heitir niðri í miðbænum, magna með þeim hætti umsvifin hér, en finna svo að hinu leytinu að því að borgarstjórinn vilji beita sér fyrir ráðhúsi, og má þá raunar líka spyrja hvort þeir menn, sem nú tala um að þeir vilji ráðgast sem mest við borgarstjórann um ráðhúsið, hafi viljað beita sér fyrir því fyrir einu ári að rætt yrði við borgina um hvernig hagað yrði uppbyggingu nýs alþingishúss. Ef þetta fer svo mjög saman sem mér er sagt er auðvitað eðlilegt að skyldurnar séu á báða bóga. Ef við óttumst að of mikil umferð og umsvif fylgi nýju ráðhúsi hljótum við um leið að óttast þá umferð sem fylgir uppbyggingu nýja og stóra alþingishússins. Þannig verðum við að tala um öll þessi mál í heild og skjóta engu undan.
Umræðu frestað.